
Núna eru liðnar um það bil tvær vikur síðan ég sá Sveitabrúðkaup og að leikstjóri myndarinnar, Valdís Óskarsdóttir kom í tíma til okkar og sagði frá gerð myndarinnar.
Sveitabrúðkaup er fyrsta mynda sem Valdís Óskarsdóttir leikstýrir en hún hefur unnið sem klippari í mörg ár og klippt myndir eins og Festen og Eternal sunshine.
Sveitabrúðkaup er íslensk gamanmynd sem fjallar um brúðkaup Ingu og Barða sem á að eiga sér stað í sveitakirkju. Vandamálið er hinsvegar að finna kirkjuna og sýður upp úr öðru hverju í gegnum myndina og átök eiga sér stað milli ólíkra karaktera.
Ekkert handrit var skrifað fyrir Sveitabrúðkaup heldur var aðeins búinn til nákvæmur söguþráður. Flest samtölin og minni háttar atburðir eru hreinn spuni leikaranna. Fyrir tökur myndarinnar fengu leikararnir það hlutverk að búa til karakterinn sinn auk þess sem hver og einn í myndinni fékk ákveðið leyndarmál sem aðrir leikarar vissu ekki af. Þetta gerði það svo að verkum að öll samtöl í myndinni eru mjög eðlileg og leikararnir gátu skotið inn bröndurum eins og þeir vildu.
Þetta fyrirkomulag með leyndarmálin og spunann var líka sérstaklega skemmtilegt eftir á þegar Valdís kom í tíma til okkar og sagði okkur frá þeim. Þá fór maður að pæla í myndinni og velta því fyrir sér hvaða leyndarmál persónunar höfðu eins og t.d. með Barða og hvalfjarðargönginn.
Öllu á botninn hvolft: Sveitabrúðkaup kom virkilega á óvart og var betri en ég átti nokkurn tímann von á. Það var sérstaklega skemmtilegt að fá Valdísi í tímann vegna þess hve óvenjuleg gerð myndarinnar var.
1 ummæli:
3 stig.
Skrifa ummæli