
Ég ætlaði að skella mér á My Winnipeg og varð orðinn talsvert spenntur fyrir henni þegar eg kom í Regnbogann og sá blað í glugganum á miðasölunni sem stóð á UPPSELT Á WINNIPEG. Þá tók ég þessa skyndiákvörðun að fara á Tulpan án þess að vita mikið um hana.
Tulpan gerist i Khazakstan og fjallar um Asa sem er ungur maður og nýbúinn að klára herskylduna. Asa fer að búa hjá systur sinni og eiginmanni hennar sem er miklu eldri en hún. Þau búa í hálfgerðri eyðimörk í landbúnaðarsamfélagi þar sem fólk býr tjöldum og smalar geitum. Myndin fjallar um tilvistarkreppu Asa sem þarf nú að finna ser konu og sína eigin hjörð nema að eina stelpan í þessu samfélagi, Tulpan, vill ekkert með hann hafa og Ondas, eiginmaður systur hans, þolir hann ekki þokkabot sem gerir líf hans ennþá erfiðara.

Í myndinni eru skrautlegar aukapersónur eins og flutningagaurinn Boni. Boni keyrir um á handónýtum traktori sem er klæddur að innan með úrklippum úr klámblöðum og flytur vatn og aðrar nauðsynjar til tjaldanna. Boni dreymir um lífið í stórborginni á meðan Asa dreymir um að eiga sína eigin hjörð með Tulpan.

Mér fannst Tulpan fjalla meira um krummaskuðið sem þau bjuggu í heldur en tilvistarkreppu Asa. Myndin er næstum tveir klukkutímar og er frekar hæg. í myndinni er ekkert sérstaklega mikið um dialog og þessvegna kynnist maður persónunum bara frekar yfirborðslega. Hins vegar er mikið um skot af lömbum að fæðast og öðrum hlutum sem tengjast bara khasakstönsku sveitalífi. Myndin minnti mig á myndina Megatron á Short ´n Docs að því leyti að þær voru bara áhugaverðar fyrir þær sakir að þær gerast í framandi umhverfi en söguþráðurinn sjálfur er ekkert spes.
Ég hugsa að ef að plottið væri yfirfært i eitthvað týpískara umhverfi þá væri þetta ómerkilegasta mynd í heimi en ekki eitt af topp 3 bestu myndum RIFF skv morgunblaðinu.
1 ummæli:
Ágæt færsla. 5 stig.
Mér fannst þessi soldið eins og kasakstönsk útgáfa af Sjálfstæðu fólki...
Skrifa ummæli