31 mars 2009

2 örblogg

Þegar ég sast niður í lok mánaðarins og ætlaði að byrja að blogga hélt ég að það yrði mér auðvelt þar sem ég hef séð margar geðveikar myndir upp á síðkastið. Þegar ég sast loksins niður til að skrifa var það mér hins vegar erfiðara en ég hélt þar sem um hálfur mánuður (eða meira) hafði liðið síðan ég sá myndirnar og þessvegna urðu færslurnar frekar píndar út úr mér í stað þess að flæða. Þess vegna hef ég ákveðið að skrifa örblogg um þessar myndir þó svo að þær verðskuldi veglegar færslur.


Myndin Frost/Nixon kom út árið 2008 og er leikstýrð af Ron Howard.
Söguþráður myndarinnar byggist á sögulegu viðtali sjónvarpsmannsins David Frost við fyrrverandi Bandaríkjaforseta Richard Nixon. Forsaga málsins er sú að Nixon segir af sér vegna Watergate hneysklisins sem snerist aðallega um hlerarnir á pólítískum andstæðingum hans. Nixon er hins vegar aldrei sóttur til saka vegna málsins því sá forseti sem tók við af Nixon gaf honum fulla náðun. Málið var hins vegar algjör skandall og mikill þrýstingur var á Nixon að játa sök sína í málinu.

Í myndinni Frost/Nixon er gífurlega mikil forsaga og það er ótrúlega mikið magn af upplýsingum sem þarf að koma til skila til áhorfandans til að myndin gangi upp. Það er virkilega flókið verkefni hjá kvikmyndagerðamönnunum að koma öllum þessum upplýsingum til skila og láta myndina vera spennandi. Til að gera það í myndinni eru persónur myndarinnar látnar vera sögumenn og tekin er mynd af þeim uppstilltum eins og um væri að ræða heimildarmynd. Mér fannst þetta snilldaraðferð til fleyta plottinu áfram því það gerði það að verkum að áhorfandinn var gjörsamlega inn í því sem var að gerast og jafnframt gerðust hlutirnir hratt og spennandi.


The Reader er byggð á samnefndri bók og fjallar um strák sem á í ástarsambandi við konu. Myndin fylgir lífskeiði mannsins og fjallar í rauninni um þau áhrif sem kynni hans af áðurnefndri konu hafa á hann. Satt best að segja leist mér ekkert á þessa mynd. Ég hafði séð brot úr henni sem sýndi Kate Winslet og strákinn saman í baði og kveikti það vægast sagt engan áhuga. Ég var samt hvattur til að horfa á hana og þegar ég spurði hvað málið væri með þessa mynd var mér svarað: “hún er bara mögnuð, ég veit ekki afhverju”. Og hún er það svo sannarlega. The Reader náði virkilega til mín og ég hugsaði um hana nokkra daga eftir að hafa séð hana. Ég veit hins vegar ekki hvað það er nákvæmlega sem gerði hana svona magnaða.

Það hefur allaveganna ekki skemmt fyrir hversu vel leikin myndin er. Kate Winslet var þrælgóð í henni og hún vann óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni. David Kross heitir sá sem lék strákinn og frammistaða hans í myndinni var ekki síðri heldur en hjá Winslet. Í myndinni leikur hann 15 ára strák og seinna í myndinni sama strák þegar hann er orðinn 22 ára. Það vakti sérstaklega athygli mína hvað Kross gat leikið sömu persónu á mismunandi tímapunktum og það gjörsamlega skein í gegn að persónan hafði þroskast.

Gran Torino

Ég sá myndina Gran Torino um daginn. Gran Torino skartar Clint Eastwood í aðalhlutverki auk þess sem hann framleiðir hana. Sjálfur þekki ég Clintarann bara af seinni tíma myndum hans eins og Million Dollar Baby og það er í raun hálf vandræðalegt að þurfa að viðurkenna það að ég hef aldrei séð almennilega Clint Eastwood mynd eins og Dirty Harry eða The Good, The bad and the ugly en þær eiga víst að vera epískt svalar.

Söguþráður Gran Torino er ótrúlega einfaldur og myndin er í rauninni eins og dæmisaga. Í örstuttu máli þá er Clint grautfúll íhaldssamur ekkill og nýfluttir nágrannar hans eru asískir innflytjendur. Þrátt fyrir að líka illa við þau að eðlisfari þá líður ekki á löngu þar til hann vingast við þau og bjargar einum þeirra frá glæpaklíku. Ég ætla ekki að fjalla meira um innihald myndarinnar því þá þyrfti ég að fara að setja upp spoiler viðvararnir.

Allaveganna þá líkist söguþráður myndarinnar dæmisögu eins og áður kom fram og ég get ekki sagt annað en að ég hafi fílað það. Söguþræðir bíómynda þurfa nefninlega ekkert að vera flóknir til að gera þá áhugaverða og oft eru geðveikar myndir byggðar á einfaldri hugmynd. Þetta gaf mér smá innblástur hvað varðar lokaverkefnið okkar og ég reyndi að kynna mér einhverjar einfaldar, sígildar sögur sem væri hægt að setja í nýjan búning og myndu henta í stuttmynd. Ég varð hins vegar engu nær og þegar að við vorum loksins komin með myndavélina leit þetta út fyrir að vera vonlaust. Það er einhvern vegin ekki hægt að vera kreatívur þegar maður nauðsynlega þarf þess. Þetta endaði svo á því að ég fékk þá hugdettu að sækja hugmyndir í Twilight Zone. Fyrir þá sem ekki vita það þá eru það 30min eða 60min langir þættir sem komu fyrst út 1959-64 og svo aftur 1985-89 og síðast 2002-2003 en þeir síðustu voru sýndir á skjá einum á sínum tíma. Þættirnir eru með Sci-Fi ívafi og allir þættirnir sjálfstæðir og þess vegna gífurlega mikið samansafn skemmtilegra hugmynda. Ég eyddi 2 klst+ í að skoða hvern einasta þátt til að finna einhverja góða hugmynd sem hægt væri að útfæra auðveldlega. Mér þótti virkilega merkilegt að fara í gegnum þetta því það var augljóst að efni sumra þáttanna hafði verið gert gert að bíómyndum eins og t.d. Truman Show.

En aftur að Gran Torino. Ég get ekki sagt að ég hafi verið hrifin af myndinni. Hún hefur nokkra góða spretti en í heildina séð þá fannst mér hún ekkert sérstaklega merkileg. Það sem skemmdi fyrir myndinni var meðal annars hversu illa Tao var leikinn. Hann slapp með það svona stærsta hluta myndarinnar en þegar mest á reyndi var hann bara ekki að gera sig. Einnig í lokin á myndinni þegar myndin er í rauninni búin og lokatitlarnir eru farnir að rúlla þá tekur Clint Eastwood lagið nema eins og maður getur rétt ímyndað sér þá getur maðurinn ekki sungið. Þetta kemur myndinni sjálfri ekkert sérstaklega mikið við en mér fannst þetta grafa örlítið undan annars dramtískri mynd.

Watchmen

Það virðist hafa komið í tísku fyrir um áratug að búa til ofurhetjumyndir sem byggðar eru á teiknimyndasögublöðum. Á síðustu 9 árum hefur allur fjandinn komið út. Það hafa verið gerðar virkilegar góðar myndir á borð við Iron Man eða Dark Knight (þó ekki sami gæðaflokkur) og algjör hryllingur eins og Elektra. Upp á það síðasta virðast menn hafa byrjað að búa til nýjar ofurhetjur eins og í þáttaröðinni Heroes. Einnig þá sýnist mér vera að koma út mynd núna með tilbúnum ofurhetjum sem Dakota Fanning leikur í en hún er víst orðin 15 ára núna.

Watchmen er hins vegar byggð á traustum grunni. Watchmen er byggð á teiknimyndaskáldsögu eftir Alan More en hann samdi m.a. teiknimyndasöguna V for Vendetta og League of Extraordinary Gentlemen.

Allt sem viðkemur Watchmen heiminum er ótrúlega töff, áhugavert og útpælt. Myndin gerist árið 1985 í öðrum veruleika þar sem ofurhetjur eru til og kjarnorkustyrjöld,og um leið gjöreyðing, virðist óumflýjanleg. Ofurhetjur Watchmen eru ekki hallærislegar stereótýpur heldur eru þær flóknar og hver og ein hefur mismunandi forsögu og hvata. Ofurhetjur Watchmen hafa enga augljósa ofurkrafta nema einn þeirra og hann virðist vera næstum almáttugur.

Það eru skiptar skoðanir um Watchmen. Mér sýnist fólk annað hvort fíla hana í botn eða finnast hun ofmetin. Ég hef lesið á mörgum stöðum að plottið sé of flókið nema fyrir þá sem hafa lesið bókina. Ég get ekki verið meira ósammála því ég hef sjálfur ekki lesið bókina en náði plottinu. Það sem mér líkaði við Watchmen var hversu útpældar persónurnar eru og hvað þær eru flottar. Rorschach og The Comedian sitja í manni eftir myndina. Allt hið sjónræna í myndinni er einnig algjört meistaraverk. Litasamsetningin, búningarnir og kvikmyndatakan er svo flott að það verður seint toppað. Enda ekki við öðru að búast af leikstjóranum Zack Snyder sem leggur mikið upp úr hinu sjónræna þó svo að það hafi komið niður á síðustu mynd hans 300 sem verður að teljast feilspor. Ég verð þó að játa að mér fannst hún kúl í bíó en held að ég muni aldrei horfa á hana aftur.

Sumir Watchmen aðdáendur virðast vera sárir yfir því að vissum þáttum í myndasögunni hefur verið sleppt í myndinni. Ég hef ekki lesið bókina en mér skilst að myndin sé næstum því eins og bókin leggur sig og sum skotin líta nákvæmlega eins út og rammi í bókinni. Vegna þess að myndin fylgir bókinni svo ítarlega er myndin heilir 2 tímar og 40 mín. Sjaldan hafa þó rúmlega tvær og hálf klukkustund liðið jafn hratt í kvikmyndasal því myndin rígheldur manni. Sama get ég þó ekki sagt um aðra bíógesti og ég hef aldrei á minni löngu ævi upplifað jafn mikla truflun í bíósal. Það er sjaldgæft að myndir sem eru svona langar hafi jafn heilsteypt plott. Í þessu samhengi man ég að þegar ég sá Dark Knight fannst mér myndin hafa endað tvisvar ef ekki þrisvar. Í hléinu leið mér eins og myndin væri búin en ekki hálfnuð.

Ég get ekki sagt annað en ég hafi verið stórhrifin af Watchmen og ég skil ekki afhverju það eru svona skiptar skoðanir um hana.

Waltz with Bashir

Waltz with Bashir er Ísraelsk mynd sem kom út árið 2008 og var tilnefnd til óskarsverðlauna sem besta erlenda bíómynd.

Myndin fjallar um Ari Folman sem í byrjun myndarinnar hittir gamlan félaga úr Ísraelska hernum sem segir honum að hann fái sömu martröð hverja nóttu eftir að þeir tóku þátt í Lebanon stríðinu árið 1982, þá aðeins 19 ára gamlir. Það þykir Ari mjög sérstakt vegna þess að hann hefur engar sérstakar minningar frá þessu tímabili. Ari gerir þá það að markmiði sínu að komast að því hvað gerðist og ennfremur afhverju hann muni ekki eftir neinu. Ari kemst fljótt á sporið og myndin tengist fjöldamorðum í Lebanon stríðinu sem Ari og félagar hans tóku óbeinan þátt í. Myndin gengur mjög mikið út á viðtöl við gamla félaga hans og stór hluti myndarinnar gerist í endurminningarsenum (flashback). Það er voðalega erfitt að átta sig á því hvernig mynd Waltz with Bashir er. Myndin er sögð vera heimildarmynd en samt sem áður virkar hún á áhorfandann eins og hún sé gerð eftir handriti. Hún virkaði þannig a.m.k. á mig og ég sá seinna á wikipediu að einhverjar persónurnar eru uppspunnar og þess vegna veit ég ekki beint hvað maður á að hugsa. Það er kannski einfaldast og réttast að hugsa um myndina sem sjálfsuppgötvunar ferðalag eins manns sem segir frá því með bíómynd og tekur sér listrænt frelsi til að segja frá því eins og honum sjálfum listir.

Ég gleymdi líka að nefna að Waltz with Bashir er teiknimynd. Það flækir málin enn frekar þar sem að myndin er heimildarmynd með viðtölum þar sem viðmælandi er teiknaður og er stillt upp á móti “myndavélinni” nákvæmlega eins og ef um væri að ræða kvikmyndaða heimildarmynd. Hvað varðar teiknimyndastílin er hann virkilega flottur og minnir á teiknimyndasögustíl. Stíllinn minnti mig mjög mikið á teiknimyndina A Scanner Darkly en hún var gerð með aðferð sem kallast víst Rotoscoping en það kallast það þegar teiknað er yfir alvöru kvikmyndaða mynd.

Waltz with Bashir var hins vegar ekki gerð með rotoscoping heldur var hún teiknuð frá grunni. Teiknuð heimildarmynd hljómar eflaust svolítið skringilega en þetta formatt hentar Waltz with Bashir fullkomlega. Myndin gerist mjög mikið í flashbökkum og því hjálpaði stíllinn myndinni að gera þessi atriði draumkenndari og stundum flottari. Fyrst og fremst held ég að þessi stíll hafi verið valin vegna þess að hann leyfir kvikmyndagerðamanningum, Ari Folman, að gera myndina eins og hann vill gera hana án þess að þurfa að kosta of mikið. Myndin hefði eflaust verið mun dýrari og erfiðara hefði verið að gera hana ef hún hefði verið leikin. Einnig í þessu ljós þá tapar myndin engu í sambandi við áhrif á áhorfanda sem teiknimynd. Tónlistin var líka mjög flott og allir hljóðeffektar. Hins vegar til að setja eitthvað út á myndina þá fannst mér hún stundum aðeins of hröð. Að öllu jöfnu þá er ég á móti því að myndir teygji lopann og mín skoðun er að myndir eigi aldrei að verða lengri en þær þurfa að vera. Í Waltz with Bashir eru nokkur mjög dramatísk atriði sem hefðu eflaust notið sín betur ef þeim hefði ekki flýtt eins mikið.

Til að summa upp þá er Waltz with Bashir klárlega með áhugaverðari myndum sem ég hef séð. Myndin er einnig bæði einlæg og falleg og teiknimyndastíllinn er flottur.

Trailerinn:

Gomorrah


Árið 2006 gaf ítalskur maður að nafni Roberto Savioni út bók sem heitir Gomorra. Titill bókarinnar vísar í syndaborgina Gómeru í bíblíunni sem ásamt Sódómu var eyðilögð af reiði Guðs. Efni bókarinnar eru ítarlegar lýsingar á starfsemi Comorra glæpahringsins í Napóli sem svipar til mafíunnar. Bókin varð metsölubók en hún vakti einnig athygli glæpaforingja Comorra sem hótuðu Roberto lífláti og gerðu tilraunir til að ráða hann af lífi. Saviano hefur því búið undir vernd ítölsku lögreglunnar síðan bókin kom út. Árið 2008 kom út bíómynd sem er byggð á efni bókarinnar og er leikstýrð af Matteo Garrone.

Í myndinni Gomorra eru sagðar sögur af einstaklingum sem öll tengjast glæpasamtökunum. Sögurnar fjalla um 13 ára strák og hvernig hann kemst inn í kemst inn í klíkuna. Klæðskera sem vinnur hjá Comorra verksmiðju en tekur að sér að kenna leynilega Kínverjum í verksmiðju sem er í stífri samkeppni við hans eigin. Strák sem vinnur sem aðstoðarmaður manns sem sér um að losa eiturúrgang ólöglega í yfirgefnum námum. Mann sem hefur það að atvinnu að koma peningum til fjölskyldna meðlima glæpahringsins sem eru í fangelsi. Síðast en ekki síst um tvo stráklinga sem dreymir um að vera eins og Tony Montana með alvarlegum afleiðingum.
Þessar sögur fléttast svo saman og fjalla um hvernig þeir tengjast allir glæpasamtökunum og áhrifin sem samtökin hafa á líf þeirra.

Myndin er frekar ruglingsleg í byrjun. Þessar fimm sögur gerast samtímis og klippt er á milli þeirra án þess að maður nái að átta sig nógu vel á þeim. Myndin er gerð þannig að áhorfandinn horfir á atburðarrás myndarinnar utan frá. Það er ekki skyggnst inn í hugarheim persónanna og áhorfandi kynnist persónum yfirborðslega. Frásagnaraðferð myndarinar virkaði þannig frekar “hlutlaus” á mig. Ég varð sjálfur svolítið pirraður yfir þessu því ég var sannfærður um að myndin hefði meiri áhrif ef áhorfandinn væri hafður með í spilunum en ekki haldið fyrir utan. Einnig þá var maður ekki viss um hvað þetta allt þýddi í gegnum myndina. Þ.e. hver væri tilgangurinn með því sem var að gerast og hvernig sögurnar ættu að tengjast saman. Það skemmdi svolítið fyrir mér að ég var ekki viss hvað ég var að horfa á og í rauninni var ég alltaf að bíða eftir því að myndin myndi meika sens.

Þegar áhorfandanum er haldið fyrir utan eru sumir hlutir sem maður á bara að fatta sjálfur því það kemur aldrei fram berum orðum hvað er í gangi. T.d. er atriði í myndinni þar sem verið er að skjóta á 13 ára strákinn sem er í skotheldu vesti. Á meðan á myndinni stóð kveikti ég ekki á perunni en eftir myndina las ég að þetta átti semsagt að vera inngöngu-eldraun (initiation) hjá stráknum. Einnig var svolítið erfitt að fatta hvert hlutverk mannsins sem var að gefa fjölskyldum fangselsaðra meðlima peninga því það kom aldrei augljóslega fram.

Myndin virkaði þannig pínu puzzling á mig en þrátt fyrir það þá hélt hún athygli manns fullkomlega. Uppgjörið sem myndi tengja allt saman og myndi jafnframt láta myndina meika sens kom fram í blálokin þegar myndin var búin. Þá komu fjórir textaskjáir þar sem fram komu upplýsingar um raunverulegu Comorra samtökin sem tengdist efni myndarinnar. Þá sá maður loksins að myndin var ekki hefðbundin leikin bíómynd eins og ég hélt að hún væri áður en ég byrjaðir að horfa á hana. Myndin átti einfaldlega að gefa áhorfandanum innsýn inn í raunveruleika Comorra glæpasamtakana og hvernig þau hafa áhrif á líf Napolíbúa. Myndin var þannig séð eins og leikin heimildarmynd því það var ekki verið að fegra neitt heldur hlutirnir sýndir eins og þeir er í alvörunni.

Ég held að ég hefði ekki verið jafn týndur og ég var ef ég hefði gengið að myndinni vitandi um hvað hún snerist. Ég verð hins vegar að segja að myndin var stórgóð eins og hún reyndist vera þótt að hún hafi ekki meikað almennilega sens fyrir mér fyrr en eftir hún var búin.

28 febrúar 2009

3 örblogg

Sumar myndir eru þungar, aðrar myndir eru áhugaverðar, svo eru til myndir sem eru bara sáraeinfaldar og stórskemmtilegar. Þannig er Taken.

Taken fjallar um dóttur fyrrverandi leyniþjónustumanns sem er rænt af mannsalsglæpahring. Punktur, það er einfaldlega ekki flóknara. Taken er svona mynd sem maður horfir á þegar manni langar einfaldlega bara að horfa á einhverja bíómynd og hafa gaman af án þess að skuldbinda sig í lengri tíma en 90 mín og þurfa að ráða úr flóknu plotti. Taken er ekkert að skafa af því. Hasarinn byrjar innan við 10 mín eftir að myndin byrjar og spennan dettur aldrei niður í þær 90 mín sem hún spannar. Það besta við Taken er að hún tekur sig ekki alvarlega og hún reynir ekkert að vera eitthvað annað en hún er. Myndin er bara spennandi og skemmtileg og hún er ekkert að reyna að vinna nein Óskarsverðlaun.

Benjamin Button var tilnefnd til 13 óskarsverðlauna og vann 3 styttur. Myndin er þrjár klukkustundir að lengd og fylgjir lífshlaupi Benjamin Buttons sem fæðist gamall og yngist eftir því sem hann eldist.
Mér þótti Benjamin Button skemmtileg en það var eitt við hana sem mér fannst mjög skrítið. Mér finnst eins og hann hafi verið algjörlega skoðanalaus í öllu sem hann gerði og að hann hafi í rauninni bara svifið með atburðarásinni eins og vofa. Maðurinn er að yngjast eftir því sem hann eldist en samt sem áður virðist hann bara vera sallarólegur og eiginlega bara alveg sama. Það eitt að hafa verið yfirgefinn af fjölskyldu sinni ætti að hafa verið nóg til að koma honum úr jafnvægi og svosem ágætis efniviður í bíómynd eitt og sér.

Ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um Benjamin Button. Ég skemmti mér við að horfa á hana en það fer í taugarnar á mér hvað Benjamin var einfaldur karakter. Því meira sem ég hugsa um myndina finnst mér hún vera meira eins og öfug-forrest gump.

Myndin Come and See frá Sovétríkjunum var sýnd í bíótíma um daginn.
Það sem gerir Come and see svolítið sérstaka er að hún er gerð á þann hátt að áhorfandinn upplifi það sem aðalpersónan upplifir. Til að mynda þegar aukapersónur töluðu við aðalpersónuna horfðu þær beint á myndavélinna eins og þær væru að tala við áhorfandann. Einnig þegar sprengja sprakk við hliðina á aðalpersónunni og hann missir heyrnina tímabundið þá var haft hátt suð í ansi langan tíma eftirá sem gerði margan nemandann pirraðan. Hvað þetta varðar, þ.e. að láta áhorfandann upplifa það sem aðalpersónan upplifir, var myndin ansi vel heppnuð. Myndin fjallar um strák sem er í upphafi spenntur að komast í stríð en kemst svo að því að stríð eru hræðileg. Þegar strákurinn grét í myndinni og hann gerði það ansi oft, þá langaði manni sjálfum stundum að grenja vegna þess hve ringlaður maður var í myndinni og að ógleymdu suðinu.

Það gerðist mjög oft í myndinni að mér fannst það sem persónunar sögðu eða gerðu ekki meika neitt sens. Ég trúi því eiginlega ekki að menningarmunurinn á Sovét-ríkjunum hafi verið svo mikill að maður botni ekkert í persónunum.
Þegar ég hugsa aftur til myndarinnar þá finnst mér hugmyndin af myndinni vera mjög góð. Konceptið er mjög gott en þrátt fyrir það get ég ekki sagt að ég hafi verið neitt sérstaklega hrifinn af myndinni því mér leið hreinlega illa eftir hana en það virðist hafa verið markmið leikstjórans því stráknum leið illa .. þannig að myndin hlýtur þá að vera góð (??)

Rettur


Þegar Óskar Jónasson kom til okkar fyrr í vetur í sambandi við nýjustu mynd sína Reykjavík-Rotterdam sagði hann okkur frá því að samstarfsmaður hans Sigurjón Kjartansson væri að reyna að búa til góða íslenska spennuþætti. Sigurjón hefur verið ansi afkastamikill því fyrir utan að hafa komið að gerð Reykjavik-Rotterdam hefur hann unnið að gerð a.m.k. þriggja íslenskra spennuþátta sem hafa verið sýndir núna í ár og í fyrra. Þeir eru Pressan, Svartir Englar og núna Réttur.
Réttur eru nýjustu þættirnir og þeir fjalla um lögfræðinginn Loga Traustason. Þættirnir eru 6 talsins og hver þáttur er um 50 mín langur. Þetta er semsagt þetta standard spennuþátta-format eins og við þekkjum úr þáttum eins og Dexter
Í hverjum þætti fást Logi og samstarfsmenn hans við ýmis lítil mál sem geta annað hvort verið hlægileg eða hádramatísk. Auk þeirra kemur svo hægt og bítandi í ljós aðalplott þáttaraðarinnar.

Það er ekkert auðvelt að búa til íslenska spennuþáttaröð. Ég reyndi að horfa á bæði Svarta Engla og Mannaveiðar, sem voru líka sýndir í vetur, og gafst upp á þeim báðum. Ástæðan var að mér fannst þeir vera of stirðir, þ.e. handritið og samtölin óraunveruleg og leikararnir of einbeittir að skýrum framburði að þættirnir töpuðu öllum raunveruleikablæ. Réttur er hins vegar fyrsta íslenska spennuþáttaröð sem ég hef dottið inn í og mér finnst ótrúlegt hversu vel heppnaður hann er. Þátturinn er mjög smooth en það er nauðsynlegt fyrir alla spennuþætti eins og þennan. Einnig þá er hann furðu vel skrifaður sem og leikinn. Í aðalhlutverki í þáttunum er Magnús Jónsson. Ég hef aldrei séð hann áður en röddin hans var mjög kunnuleg því hann talaði m.a. fyrir Bósa ljóssár. Mér fannst það mjög nett að hafa einhvern í aðalhlutverki sem ég hafði ekki séð áður og ég er á þeirri skoðun að ef að t.d. Hilmir Snær (með fullri virðingu fyrir honum) ,eða aðrir jafn áberandi leikarar hefðu hreppt aðalhlutverkið, hefðu þættirnir ekki virkað jafn vel á mig og þeir gerðu.

Réttur er eins og ótrúlega dæmigerður bandarískur spennuþáttur um lögfræðistofu. Hann er eiginlega svo týpískur að maður myndi ekki horfa á hann ef hann væri í alvörunni bandarískur þáttur en út af því að hann gerist á Íslandi þá er hann ferskur og miklu skemmtilegri fyrir vikið. Sem dæmi um hversu týpiskur hann er þá er aðalpersónan algjör töffari sem sefur hjá hvaða konu sem hann girnist. Hann fer líka í ljós, klæðist flottum jakkafötum og á við drykkjuvandamál að stríða. Hann býr í bacheloríbúð í þingholtunum og lögfræðistofan sem hann vinnur á er í Turninum í Kópavogi. Út frá ofanrituð mætti maður halda að aðalpersónan væri algjör klisja. Það er líka alveg rétt. Það er greinilegt að Sigurjón Kjartanson er ekki að taka sig svo alvarlega að hann vilji búa til spennuþætti sem eru svo raunverulegir að þeir verða leiðinlegri fyrir vikið – heldur sé hann fyrst og fremst að reyna að búa til gott sjónvarpsefni.

Þátturinn fær lánaða hluti héðan og þaðan úr sjónvarpi. T.d. mátti sjá nokkra augljósa Boston Legal takta stundum og þótti mér það algjör snilld að sjá einhverju því líkt í íslensku sjónvarpi. En þátturinn fær einnig lánaða hluti úr íslenskum raunveruleika. Tvisvar í þættinum komu upp mál sem ég kannaðist eitthvað við og mundi ég þá eftir því að ég hafði lesið um það á vísi.is löngu áður! Það voru svona hálfpartinn íslensk furðumál eins og þegar sýslumaðurinn á Selfossi kærði konu sem lenti í bílslysi fyrir að hafa stofnað lífi mannsins síns í hætti sem var farþegi í bílnum.
Til að summa þetta upp er Réttur mjög vel heppnaður og ég bíð spenntur eftir framhaldi en síðasti þátturinn benti til þess að það yrði gert framhald. Ég er mjög ánægður með að loksins skyldi koma góður íslenskur spennuþáttur og ég hálfpartinn sé eftir því að hafa gefist jafn auðveldlega upp á Svörtum Englum fyrst mér þótti Réttur svona vel heppnaður.

The Wrestler

Ég sá The Wrestler í gær. The Wrestler er leikstýrð af Darren Aronofsky sem gerði π og að ógleymdri epíkinni Requiem for a dream. Tæpum átta árum eftir að hafa séð hana er lokaatriðið í henni mér ennþá minnisstætt.

The Wrestler fjallar um útbrunninn fjöldabragðaglímukappa sem hjakkast ennþá í sama farinu og lifir í þeirri falstrú að hann geti gert comeback. Randy the Ram (sem er stage nafnið hans) lifir ömurlegur lífi. Hann býr ýmist í hjólhýsagarði eða aftan í sendibílnum sínum. Hann á enga fjölskyldu fyrir utan dóttur sem vill ekkert með hann hafa og sú manneskja sem stendur honum næst er líklega fatafella. Hann lifir semsagt mjög aumkunarverðu lífi en það aumkunarverðasta hlýtur þó að vera að hann heldur ennþá í drauminn og hefur lifibrauð sitt af því að glíma á litlum samkomum.

Randy the Ram er leikinn af Mickey Rourke og frammistaða hans í myndinni er ekkert minna en frábær. Mickey Rourke er fullkominn maður í hlutverkið. Fyrir utan það að líta nákvæmlega út eins og maður hefði ýmindað sér persónuna þá hefur Rourke persónulega reynslu af boxi sem hlýtur að vera það sem kemst næst því að vera fjöldabragðaglíma, nema þá kannski leiklist. Rourke átti nokkuð farsælan leiklistarferil á 9. áratugnum og þótt ótrúlegt sé þá skilst mér að maðurinn hafi verið hálfgert kyntákn!

Í upphafi 10. áratugarins fékk Rourke nóg af leiklistinni en hans eigin orð voru að hann hafði enga virðingu fyrir sjálfum sér sem leikara og að hann væri sjálfeyðandi (self-destructing). Þá tók hann box fyrir sér og átti nokkuð farsælan feril þótt hann átti ekki roð í þá bestu sökum aldurs. Eftir boxferilinn var andlitið hans svo sundurbarið að hann þurfti á lýtaaðgerðum að halda til að endurmóta andlitið hans. Aðgerðirnar sem hann gekkst undir misheppnuðust stórlega og hefur Rourke viðurkennt að hann hafi valið “rangan mann” í starfið. Þetta er sagan af því afhverju Rourke er svona hræðilega ljótur í dag.

Rourke virðist hins vegar hafa gert veikleika sinn að styrk sínum þegar hann gerði comeback því hann hefur staðið sig ansi vel í hlutverkum ljóta og harða gaursins sbr. Marv í Sin City eða hlutverk hans í Domino. Ég get hins vegar ekki sagt að það hafi reynt neitt sérstaklega á leikhæfileika hans í þeim hlutverkum og því hef ég aldrei hugsað mér Mickey Rourke sem klassaleikara þar til núna. Rourke var frábær í myndinni og átti óskarsverðlaunatilnefninguna svo sannarlega skilið en hann var tilnefndur sem besti leikari í aðalhlutverki.

***Varúð spoiler*** Hugleiðingar um endar.

Í endanum á myndinni er Randy að glíma við Ayatollah og það kemur mjög skýrt fram að hjartað hans er að gefa sig. Myndir endar svo á því að hann klifrar upp í hornið á vellinum og undirbýr sig að hoppa á Ayatollah með svokölluðu Ram Jam eins og í tölvuleiknum sem hann spilar fyrr í myndinni. En þá endar myndin og áhorfandinn fær ekki að sjá hvað gerist meira. Fyrst um sinn hélt ég að það ætti að vera undir áhorfandanum komið að ákveða hvað yrði um hann, þ.e. fær hann hjartaáfall eða lifir hann leikinn af og byrjar með fatafellunni. Því meira sem ég hugsaði um endinn þótti mér það alveg ljóst að það átti hreinlega bara að vera augljóst að hann hafi fengið hjartaáfall. Ég sá hins vegar á wiki að sá sem skrifaði um myndina hefur fengið sömu hugmynd og ég í fyrstu.
Ég get ekki sagt annað en að ég fíli svona enda sem leyfa áhorfandanum að velja, þ.e. ef það er vel gert og ef það á við. Ég held að ég hafi ekki verið neitt sáttari ef ég hefði fengið að sjá hann deyja eða lifa. Í sambandi við svona enda þá er mér mjög minnisstætt lokaatriðið í The Thing en hún endaði einmitt svona og maður bara varð að láta ýmindunaraflinu um endann.

27 febrúar 2009

Grave of the fireflies


Ég sá anime myndina Grave of the fireflies um daginn. Eins og kom fram í blogginu mínu um My neighbour totoro þá voru myndirnar sýndar saman í bíó. Ekki skil ég hvers vegna það var gert vegna þess að myndirnar eru algjörar andstæður. Ein er létt og skemmtileg barnamynd á meðan hin er mjög sorgleg og áhrifamikil and-stríðsmynd (anti-war) sem gæti höfðað bæði til barna og fullorðinna. Þetta fyrirkomulag gekk heldur ekki upp eins og raun bar vitni og því er kennt um það að Totoro gekk ekkert sérstaklega vel í bíó en sló svo seinna í gegn.

Grave of the fireflies fjallar um systkinin Seita og Setsuko. Myndin gerist í seinni heimsstyrjöldinni og verða þau fórnarlömd stríðsins. Mamma þeirra deyr í upphafi myndarinnar og pabbi þeirra er flotaforingi í japanska sjóhernum. Hann kemur ekkert við sögu en áhorfandanum verður fljótt ljóst um örlög hans. Seita er mjög ungur, ég myndi skjóta á 14-16 ára, og systir hans, Setsuko, er 5 ára. Þau verða semsagt munaðarleysingar og myndin fjallar um hvernig þau reyna að komast af í heimi sem er þjakaður af stríði og hungursneyð.

Grave of the fireflies er ótrúlega sorgleg og kröftug mynd. Ég verð að viðurkenna það strax að ég grét og var það í fyrsta sinn sem ég hef grátið yfir teiknimynd síðan ég sá Watership Down þegar ég var 5 ára. Myndin er líka fyrsta dramatíska anime mynd sem ég sé. Eftir að hafa séð myndina er ég alveg sannfærður um að það sé hægt að búa til hvers konar bíómynd sem er með anime-formattinu. Grave of the fireflies sem teiknimynd gefur leiknum myndum ekkert eftir ef hún skyldi ekki af einhverjum óskiljanlegum ástæðum vera betri sem teiknuð mynd heldur en leikin. Til gamans má geta að það hefur verið gerð leikin mynd eftir teiknuðu myndinni.

Myndin byrjar á því að andi Seita ávarpar áhorfandann og segir að 21 september 1945 hafi hann dáið. Myndin heldur manni þannig alveg frá byrjun. Því næst er sýnt þegar Seita liggur á lestarstöð, örmagna og vannærður, og gefur upp öndina. Þá kemur að honum ræstitæknir og tekur af honum áldós. Hann hendir dósinni út og út og þá birtist andi Setsuko (örlítið af ösku Setsuko var í dósinni). Atriðið endar á því að Seita og Setsuko eru sameinaðir.

Ég var ekki að segja frá fyrsta atriðinu í myndinni til að spoila henni heldur vildi ég vekja athygli á því að sumir hlutar í myndinni væri mjög erfitt að gera ef þeir væru leiknir. Ég hugsa að þetta atriði yrði bara draugalegt leikið. Meðfylgjandi video er af fyrstu 10 min í myndinni. Restin af myndinni er líka hægt að sjá á youtube en ég ætla að benda þeim sem hafa áhuga að það er hægt að ná í myndina í heild sinni með ensku eða japönsku tali á veoh.com

Myndin er ótrúlega falleg og sígild. Best við myndina þótti mér þó loka-skotið. Andar Seita og Setsuko eru nokkurs konar sögumenn myndarinnar og myndin endar á því að þau sitja saman á bekk og í loka-skotinu sést að þau eru að horfa niður á nútíma Kobe sem er borgin sem þau bjuggu í. Myndin er þannig dregin nær áhorfandanum og boðskapurinn er augljós.

Happy End

Við sáum Happy End fyrir ekki svo löngu í bíótíma. Þar sem að við sáum myndina öll saman ætla ég ekkert að fjalla nánar um myndina heldur snúa mér beint að gagnrýninni.

Áður en ég byrjaði að skrifa bloggið leitaði ég að myndinni til að meðal annars sjá hvenær hún var gerð. Ég fletti myndinni upp á imdb og ég fékk sjokk! Myndin er gerð árið 1966!!
Ég var gjörsamlega sannfærður um að myndin væri a.m.k 10 eða jafnvel 25 árum eldri og það er slatti miðað við tímann. Til að mynda fyrir mynd sem er gerð árið 1940, þá eru bara rúm 13 ár síðan fyrsta myndin með hljóði kom og aðeins styttra síðan þær urðu algengar.

Ég horfði semsagt á myndina með það í huga að hún værir miklu eldri en hún var og ég er núna búinn horfa á klippur af youtube úr myndinni til að komast að því hvað það var í myndinni sem fékk mig til að hugsa það. Fyrir það fyrst er myndin brúntóna og í öðru lagi er fólkið í myndinni klætt eins og maður hefði haldið að fólk hefði verið klætt um 1940.

En hvað um það. Ég ætlaði að lofa myndinni fyrir að hafa verið framsækin svona snemma en fyrst myndin kemur út 1966 (sums staðar stóð 1967) – þá finnst mér það breyta ýmsu. Myndin er samt sem áður mjög vel heppnuð. Það að mynd gerist aftur á bak býður upp á svo mikið af útfærslum, t.d. hvort talið ætti líka að vera aftur á bak. Þannig býður hugmyndin upp á það að henni sé klúðrað og myndin verði ruglingsleg og óskiljanleg. Hins vegar er Happy End mjög vel heppnuð og alls ekkert ruglingsleg.

Happy End er líka fyndin. Meðan að við horfðum á myndina hugsaði ég með sjálfum mér að húmorinn í myndinni gengi algjörlega upp og ætti alveg jafn mikið við í dag og þá. Ég var auðvitað að hugsa þetta með það í huga að myndin hefði verið gerð árið 1940 í Tékklandi. Fyndnast í myndinni þótti mér þó elskhugi konu slátrarans. Hann var hræðilega hallærislegur með yfirvaraskegg og hárið greitt í píku. Þetta var samt sérstaklega fyndið þar sem ég var ekki alveg viss hvort það ætti að vera djók.
Einnig virðist það vera alveg sígilt að spila aftur á bak þegar fólk er að borða sbr. kexátsatriðið.

Í byrjun myndarinnar var mjög nett að allt gerðist aftur á bak og það var mjög áhugavert að sjá hvernig framvinda myndarinnar yrði, þ.e. hvernig öll aftur-á-bak hugmyndin yrði útfærð. Ég verð samt að segja að upp undir lokin var maður orðinn frekar þreyttur á þessu. Samt sem áður verð ég að taka að ofan fyrir leikstjóranum að hafa haldið athygli manns jafn lengi og hann gerði. Mér sýnist líka að þeir sem stóðu að myndinni hafi gert sér grein fyrir þessu því myndin er einungis 77 min. Myndin er semsagt fyndin og skemmtileg en allaveganna fyrir mér missti hún taktinn í seinni helmingnum. Fyrst og fremst er hún samt áhugaverð.

31 janúar 2009

Sólskinsdrengurinn

Daginn áður en Friðrik Þór kom til okkar dröslaðist ég í háskólabíó til að sjá Sólskinsdrenginn. Ég hélt að maður þyrfti að setja í stellingar fyrir hana og ég var í engu stuði fyrir heimildarmynd um einhverfu.
Svo byrjaði myndin og á tjaldinu stendur að Sigurrós og Björk sæi um tónlistina. Þá varð ég áhyggjufullur og seinna þegar fjölskyldan sem myndin fjallar um var komin í bláa lónið þá fór ég að hugsa: fyrir hvern er þessi mynd búin til?
Áhyggjur mína urðu hins vegar að engu því myndin varð svo ekkert sérstaklega mikið “ísland fyrir útlendingum”.

Myndin er leikstýrð af Friðriki Þór en sögumaður myndarinnar er Margrét sem á einhverfan strák, Kela. Myndin fjallar ekki bara um reynslu Margrétar heldur fer hún til Bandaríkjanna í upphaf myndarinnar og byggist myndin að mestu leyti á viðtölum við sérfræðinga og aðstandendur einhverfra barna í bna. Í myndinni bregður fyrir m.a. viðtölum við konu sem var einhverf en sigraðist á einhverfunni og starfar nú sem búfræðingur.

Ég skimaði yfir nokkur blogg um Sólskinsdrenginn og sá að það voru margir mjög fegnir því að myndin hefði ekki verið mjög fræðileg. Ég hefði hins vegar verið til í að fræðast meira um einhverfu fræðilega en minna um úrræði fyrir einhverf börn. Annars þá er yfir mjög litlu að kvarta, sólskinsdrengurinn er þrusugóð heimildarmynd og hún nær til manns.

Í lok myndarinnar hefur Keli verið í tímum hjá indverskri konu í texas sem heitir Sumo. Sumo á einhverfan son, Tito, sem hún hefur hjálpað við að geta tjáð sig. Það er hreint ótrúlegt hvað aðferðir Sumo eru áhrifaríkar og sjást þær hvað best hjá syni hennar sem hefur skrifað nokkrar bækur um líf sitt og einhverfuna. Keli gat aldrei tjáð sig áður en með aðferðum Sumo tekst honum það og í lok myndarinnar segir hann sjálfur með hjálp Sumo að hann semji tónlist í huganum.

Friðrik Þór koms svo í tíma til okkar á miðvikudaginn og talaði um myndina. Mestallan tímann talaði hann þó um einhverfu en ekki um kvikmyndir. Friðrik er örugglega sá kvikmyndagerðamaður sem býr yfir mestri reynslu hér á Íslandi. Þess vegna var leiðinlegt að hann skyldi ekki tala meira um kvikmyndir og bransann almennt.

My Bloody Valentine 3D

Ég fór á myndina My bloody Valentine í gær. Valentine gerist í litlum bæ í bandaríkjunum sem heitir því skemmtilega nafni Harmony sem myndi útleggjast “sátt og samlyndi” á íslensku. En það er ekki langt í ófriðinn í “Sátt og samlyndi” því í kjölfar námuslyss eru fimm drepnir og maðurinn sem er talinn bera ábyrgð á því liggur í dái á sjúkrahúsi. ** varúð spoiler ** Hann heitir Harry Warden og nákvæmlega ári eftir morðin, á sjálfum valentínusardeginum, vaknar hann úr dáinu og fremur fjöldamorð. Eftir að hafa myrt alla á spítalanum leitar hann aftur til námunar þar sem hann lokaðist inni í og kemur þar að unglingarfylleríi og auðvitað drepur hann þau.
Einn af unglingunum á fylleríinu er Tom Hanniger. Hann kemst undan Warden og eftir þennan atburð yfirgefur hann Harmony þangað til 10 árum seinna snýr hann aftur, eftir 8 ára vist á geðsjúkrahúsi (kemur fram í lokin) og morðin halda áfram. ** spoiler endar **
My bloody valentine er fyrsta hryllings-spennumyndin sem er skotin í þrívídd. Maður hafði náttúrulega þvílíkar eftirvæntingar til myndarinnar sem töff bíó þrívíddar upplifunar og ég vissi eiginlega að myndin sjálf yrði léleg og ég var hálfpartinn að vona að hún yrði bara ógeðsleg og kannski pínu fyndin en fyrst og fremst skemmtileg.

Ég hafði ekki séð þrívíddarmynd síðan ég var kannski 8 ára gamall og þess vegna fílaði ég í botn alltaf þegar eitthvað töff þrívíddar móment kom. Ég tók hins vegar fljótt eftir því hversu hræðilega illa myndin var skrifuð og hvað leikararnir voru skelfilegir. Fyrsta hálftímann eða svo lét það ekkert fara í taugarnar á mér og ég reyndi að sannfæra sjálfan mig um að þetta ætti bara að vera svona lélégt, að það ætti að vera svona b-myndar fílingur í henni. Á einum tímapunkti fannst mér eins og leikarnar væru að reyna á sig að vera ósannfærandi. Þeir sem hafa ekki séð myndina hugsa örugglega þegar þeir lesa þetta að þetta sé tómt pjatt í mér en ég hvet þá sömu til þess að sjá myndina.
Ég fór að tjékka á leikurunum í myndinni á wikipedia, bara til að sjá hvort þetta séu ekki alveg örugglega atvinnuleikarar og þá sá ég að aðalleikarinn í myndinni er semsagt þekktastur fyrir hlutverkið sitt í sápunni Days of our lives. Ég hélt að sá þáttur væri bara djók í Friends en fyrir þá sem vita það ekki þá lék Joey Tribbiani í þeim.

Þrátt fyrir að myndin hefði verið hrikalega léleg þá átti hún bara að vera skemmtileg og hún var það vissulega. Það að myndin hefði verið í þrívídd var alveg nóg til þess að lífga upp á annars ansi gelda slasher unglingamynd. Ég vildi bara að óska þess að hún hefði verið, ef ekki bara pínulítið betur skrifuð og örlítið betri leikin. Þá hefði hún gjörsamlega hitt í mark.

30 janúar 2009

Nemendasýning

Í dag var nemendasýningin. Ég mætti náttúrulega of seint eins og alltaf og missti af heimildamynd Árna, Steinars, Ragga og Gísla um Íslensku Geitina. Ég mætti hins vegar í tæka tíð fyrir örmynd Magga og Péturs. Hún var mjög listræn og fjallaði um ósjálfstæði mannsins gagnvart tækninni og myndin endaði svo í þvílíkri myndgervingu þar sem maðurinn sturlaðist – og hann sjálfur varð tæknin.

Semsagt algjört kjaftæði. Hins vegar var klippingin og tónlistin algjör snilld. Myndin fylgdi fantomas lagi sem var algjör kvikmyndatónlist og til að tákna sturlun mannsins var myndum af múmíum og líkum eða öðru eins brugðið fyrir hratt og hver og ein í innan við sekúndu á skjánum. Ég kem þessu ekki alveg nógu skýrt frá mér en þetta var semsagt svipað og í Akira þegar Tetsuo sturlaðist og hann ýmindaði sér að innyflin hans læku út. Öllu á botnin hvolft var þetta flott örmynd. Söguþráðurinn algjört kjaftæði en það er auðvitað aukaatriði því fólki var skemmt.

En núna að heimildamyndinni okkar. Ég var búinn að hafa áhyggjur af því að geta ekki klárað myndina eða að hún yrði bara crap. Það er nefninlega búið að ganga svolítið brösulega að gera myndina svona á síðasta sprettinum og það var fyrir algjörri heppni að Jóhanna gat gert myndina sýningarhæfa daginn fyrir frumsýninguna.

Áður en myndin var sýnd var Jóhanna búinn að segja mér að myndin væri mjög hrá og myndin sjálf væri ekkert sérstök. Ég hafði þá ekki séð hana og var með hnút í maganum áður en myndin byrjaði. Hins vegar þegar myndin var byrjuð, og ég vona að það hafi ekki verið vegna þess að ég hafði svo litlar væntingar, þá reyndist myndin bara vera nokkuð góð. VISSULEGA var hún hrá og augljóslega ekki alveg tilbúinn en samt sem áður held ég að hún hafi alveg haldið athygli og að minnsta kosti var mér sjálfum skemmt.

Það sem ég myndi fyrst og fremst setja út á varðandi heimildamyndina um Jóa var hljóðið í viðtalinu. Það var tekið upp á gamla camcorderinn hans Ísaks en ekki kvikmyndagerðar-myndavélina því við nenntum ekki að þurfa að pæla í því hvaða dag þyrfti að taka upp. Við gerðum það semsagt bara þegar það hentaði en með augljósum afleiðingum. Það er hins vegar alveg öruggt að það sé hægt að laga það eitthvað í final cut en það kann bara enginn nógu vel á það forrit.

Það er heill hellingur sem ég myndi vilja breyta í fínpússinu á myndinni en ég ætla ekkert að útlista galla myndarinnar eitthvað frekar til þess að glöggva fólki eitthvað betur á þeim. Öllu heldur ætla ég að lofa henni. Myndin var nefninlega bara nokkuð góð og hún heppnaðist vel miðað við aðstæður. Ég hugsa að hún taki þó einhverjum breytingum í final cuttinu.

28 janúar 2009

Slumdog Millionaire


Ég sá Slumdog Millionaire um daginn. Slumdog Millionaire er byggð á bók eftir Vikas Swarup. Myndin gerist í Indlandi og fjallar um fátækan múslimastrák sem elst upp í fátækrahverfi mumbai. Í byrjun myndarinnar er Jamal á lögreglustöð og sætir pyntingum vegna þess að hann hefur þegar unnið sér inn 10.000.000 rúblur í viltu vinna milljón og eina útskýring hlýtur að vera að hann sé að svindla.
Jamal er hins vegar ekki að svindla þótt hann hafi hlotið nánast enga formlega menntun en af algjörri tilviljun eða örlögum veit hann svarið við flestum spurningunum og er það ekki vegna þess hve gáfaður hann er heldur vegna þess að á bakvið hvert svar er lítil saga og saman segja þær frá æsku Jamal.
Sagan flækist enn frekar þegar að kemur í ljós að hann er í raun ástfanginn af æskuvinkonu sinni og í rauninni hafi hann farið í þáttinn til að ná athygli hennar.
Slumdog Millionaire er allt í senn þroskasaga og ástarsaga en hún er líka fyndin á köflum og það kórónar það allt saman að myndin skyldi gerast í Indlandi sem gerir hana enn áhugaverðari.

Í mörgum bandarískum eða breskum myndum þar sem persónurnar eiga að vera útlenskar eins og t.d. Slumdog. Þá er eins og leikstjórinn og leikararnir eigi í stökustu vandræðum með það hvort þeir eigi að tala með hreim eða hvort myndin eigi að vera á útlensku (eins og Passion of the Christ!) eða þá hvort þessu eigi að blanda saman. Ég sá myndina Defiance um daginn sem á að gerast í Póllandi og leikararnir eru bandarískir og breskir en leika pólverja. Í myndinni töluðu þeir með svona slava hreim sem mér persónulega finnst pínu steikt en samt sem áður var það eiginlega nauðsynlegt því annars hefði maður fengið á tilfinningu að þetta væru bretar (n.b. Daniel Craig er í aðalhlutverki). En í þeirri mynd er líka blandað saman alvöru pólsku með enskum texta og mér fannst þetta engan veginn nógu smooth umbreyting því ég tók strax eftir þessu. Nóg um defiance.
Í Slumdog var blandaða leiðin farin og það er talað bæði indverska og enska og bæði blandað saman. Stórfurðulega þá bara svínvirkar þetta og þó maður taki eftir þessu, eðlilega, þá er það natural.

Slumdog hefur verið tilnefnd til 10 óskarsverðlauna og eru þau m.a. fyrir besta leikstjóra, kvikmyndatöku, klippingu, besta aðlagaða handrit og tónlist.
Til að kommenta á klippinguna og kvikmyndatökuna þá var mér sérstaklega minnistætt eitt atriðið úr myndinni – þegar jamal og bróðir hans eru litlir og er hent út úr lest á ferð og lenda á sandhóli og veltast í sandinum og þegar þeir eru hættir að veltast þá er skipt um leikara og nýjir, aðeins eldri leikarar taka við. Mér fannst það virkilega smooth kaflaskil. Einnig þegar þeir eru að veltast í sandinum koma skot af strákunum sem eru tekin af andlitunum þeirra og svo er sandi hellt yfir þá. Þessi skot voru bara örfáar sekúndur en mér fannst þau virkilega nett og þau bjuggu til svona “sand-í-fésið” tilfinningu.

26 janúar 2009

man bites dog



Í þar síðasta bíótíma var myndin Man bites dog sýnd. Myndin er frá belgíu, nánar tiltekið frá suðurhlutanum þar sem franska er töluð. Myndin er mockumentary þ.e. hún er leikin og sagan á sér enga stoð í raunveruleikanum en hins vegar er hún tekin upp eins og heimildamynd þannig að maður upplifir myndina eins og hún sé í raun ekta.

Man bites dog fjallar um raðmorðingjann Benoit og einnig bregður fyrir kvikmyndagerðamönnunum sem eru að taka upp myndina um hann. Fyrst um sinn er Benoit sýndur að spila á pianó og gera aðra hversdaglega hluti en það líður ekki á löngu þar til hann fer að drepa (af óskiljanlegum ástæðum) póstmenn og þaðan fram eftir götunum.

Í myndinni skiptir atburðarrásin ekki eins miklu máli og persónusköpunin og hvernig persónurnar þróast. Í rauninni er bara verið að taka mynd um þennan gæja og það er verið að drepa fólk. Ég man ekkert sérstaklega eftir því hvað gerðist í myndinni en það sem situr eftir í mér (og þessi mynd situr í manni!) er persónan Benoit.

Ég á voðalega erfitt með að lýsa Benoit því hann er bæði pínu sympatískur en í senn gjörsamlega geðsjúkur og viðbjóðslegur. Benoit á fáa vini sem eru hrædd við hann og þora ekki að andmæla honum sbr. þegar hann skýtur óvart einn afmælisgestinn í hausinn í afmælisveislunni sinni og hinir halda bara áfram að borða afmæliskökuna skíthrædd og útötuð í blóði. Benoit reynir líka að vingast við tökuliðið og býður þeim út að borða og þeir þora ekki að andmæla honum og koma út úr sér einhverjum afsöknunum skömmustulegir á svip. Benoit er nefninlega þessi típa sem allir reyna að forðast eins og þeir geta og passa sig að gera ekki neitt sem honum gæti mislíkað því hann er svo óútreiknanlegur, hann gæti bara drepið mann. Hann er mjög flókinn persóna og þess vegna finnst mér voðalega erfitt að lýsa honum en aðalmálið er að maður þekkir alveg týpuna og þess vegna situr hann pínu í manni.

Í myndinni er einnig mjög áhugavert hvernig tökuliðið þróast. Í fyrstu taka þeir engan þátt í því sem Benoit er að gera og eins og ég sagði áðan þá eru þeir frekar hræddir við hann. Hins vegar þróast það á þann veg að þeir fara að hjálpa benoit með morðin. Seinna deyr hljóðmaðurinn og enn seinna annar maður úr tökuliðinu til viðbótar en í staðinn fyrir að hætta við að gera myndina og átta sig á þessari vitleysu og geðveiki þá sökkva tökumennirnir enn dýpra í þessa geðsjúku veröld Benoits.


Man bites dog er mjög ofbeldisfull og á einum tímapunkti var mér gjörsamlega misboðið. Það var þegar Benoit og tökuliðið voru búnir að vera á fylleríi að syrgja vin sinn úr tökuliðinu og það er búið að henda þeim út af barnum og þeir brjótast inn í hús og hópnauðga konu (n.b. Benoit og tökuliðið) að manni hennar ásjáandi og næsta skot er þegar þeir eru búnir að slátra þeim báðum. Sem betur fer er myndin svart/hvít því annars held ég að ofbeldið og blóðið hefði farið yfir strikið.

Man bites dog er fínasta mynd en fyrst og fremst hafði ég gaman að henni vegna þess að þetta er einmitt svona öðruvísi mynd sem ég hefði ábyggilega aldrei heyrt um eða horft á ef það væri ekki fyrir bíótímana.