25 nóvember 2008

The Birds

Ég sá enn eina hitchcock myndina um daginn. Það var myndin The Birds með Tippi Hedrun í aðalhlutverki.

Myndin byrjar á því að Melanie Daniels hittir Mitch Brenner í dýrabúð. Brenner reynir við Melanie og hverfur svo. Vegna þess að Melanie er rík socialite og hefur ekkert betra að gera en að slæpast um, eltir hún Brenner í lítið sjávarþorp í Kaliforníu fyrir utan San Fransisco þar sem Brenner býr. Það líður ekki á löngu þangað til fuglarnir þar fara að hegða sér skringilega og fer það stigvaxandi þar til Melanie og Brenner eru búin að byrgja sig inn í húsi Brenners.

Myndir er frá árinu 1963 og þess vegna mjög forvitnilegt hvernig þeir fengu fuglana til að ráðast á fólk án CGI. Ég hafði heyrt Hitchcock tala um að þeir hefðu notað 3000 þjálfaða fugla í myndinni í viðtali í Dick Cavet show sem fylgdi með á disknum sem við fengum til að gera fyrirlesturinn. Ég varð þessvegna fyrir svolitlum vonbrigðum þegar ég sá að fuglaárasirnar voru gerðar með því að taka upp fuglana fljúgandi fyrir framan blue-screen og því svo skellt inn í myndina samanblandað við svo einhverja brúðu-fugla og/eða ekta þjálfaða. Með það í huga að myndin er 45 ára gömul þá held ég nú samt að þetta sé nokkuð gott.

Ég fann ekkert video á youtube sem þetta sést vel fyrir utan eitt þar sem einhver er búinn að mixa tónlist úr star wars ofan í myndina. Ennþá verra er að það var ekki hægt að embedda videoinu og tilraun mín til að haxxa þetta misheppnaðist þannig að linkurinn verður að duga. http://www.youtube.com/watch?v=4RKOLFxxq5E. Atriðið sem ég var með í huga byrjar um 2.40 inn í klippuna.
Í myndinni er engin tónlist og fuglaskrækirnir eru látnir duga. Í atriðunum þegar fuglarnir gerðu áras virkaði þetta mjög vel og stemmningin hefði beinlínis verið verri ef það hefði verið tónlist undir. Hins vegar þá sárvantaði tónlist annars staðar eins og í þessu atriðið hér:
Það eru eflaust skiptar skoðanir um þetta en mín skoðun er sú að atriðið hefði verið áhrifaríkara með hljóði.

Myndin endar á því að brenner og frk daniels keyra frá sjávarþorpinu umkringd fuglum. Einnig hafði það komið fram í útvarpinu að fuglaárasir hefðu átt sér stað annars í bandaríkjunum. Þannig endar myndin eiginlega bara ekki neitt heldur er það hlutverk áhorfandans að ákveða hvað gerist, eða þá að endirinn hefur haft þann tilgang að búa til svona óvissu stemmningu og fá áhorfandann til að pæla í myndinni. Ég fílaði allaveganna þetta enda-leysi og fannst hún passa heimsendastemmningunni í myndinni. Einmitt þegar ég skrifa þetta man ég eftir endinum á The Thing sem endar einmitt alls ekki. Það var líka heimsenda theme í henni og ég býst við því að endirinn hafi verið undir áhrifum Birds.

Ég fann á youtube "The birds á 1 min og 40 sek" fyrir þá sem að langar að sjá hana en leggja það ekki a sig

1 ummæli:

Siggi Palli sagði...

Fín færsla. 6 stig.