24 nóvember 2008

Quantum of solace

Ég skellti mér á nýju bond myndina, Quantum of Solace um daginn. Quantum er önnur myndin þar sem Daniel Craig leikur bond.

Í síðustu bond mynd, Casino Royal, blés Daniel Craig nýju lífi í bondmyndaseríuna og sú mynd tók algjörlega nýja stefnu frá síðustu myndum. Síðustu myndir og þá sérstaklega sú seinasta Die Another day höfðu verið hálfkjánalegar. Til að mynda þá man ég eftir því að í Die Another Day hafi aðalvondigæjinn verið í sérstökum búningi eða brynju sem hann gat stjórnað gervihnettilaser með og ef minnið er ekki alveg að fara með mig þá gat hann skotið rafmagni frá sér. Myndin var semsagt algjörlega út í hött og það er eins og framleiðendurnir hafi tekið þá stefnu að gera James Bond að "12ára" mynd, s.s. mynd sem að höfðar til 12 ára og alls ekki eldri. Þessi hnignun minnir pínu á batman-seríuna. Batman myndirnar höfðu einmitt tekið sömu stefnu allt þangað til batman begins og dark knight komu út.

Með Casino Royal var semsagt tekin ný stefna. Bond varð raunverulegri og plottið líka. Gæði myndarinnar og plottsins er þó augljósasta breytingin. Fólkið sem gerði Casino Royal virðist hafa haft metnað fyrir að gera góða bíómynd en ekki bara moneymaker. Myndin var einnig ofbeldisfullari eða ofbeldið var þá allaveganna raunverulegra. Þessi stefnubreyting féll vel í kramið hjá bond aðdáendum enda eru þeir á öllum aldri en ekki 8-12 ára sem er sá aldurshópar sem síðustu myndir virðast hafa verið sérsniðnar að.



Quantum of Solace er hins vegar ekki augljóst framhald af þessari nýju stefnu sem Casino Royal tók. Hún er samt sem áður ekkert í líkingu við Die another day eða fyrri Pierce Brosnan myndir heldur er hún einhvers staðar þar á milli. Bond er ennþá á sömu bylgjulengd og áður en gæði myndarinnar og plottsins er bara ekki það sama!
Eitt af því sem að fór mjög í taugarnar á mér með QOS var að myndin var eitt samfellt spennuatriði. Það er eins og leikstjórinn hafi reynt að hafa lágmarks dialog eða hreinlega bara atriði þar sem - enginn var að elta neinn - til að koma plottinu á framfæri. Oft í myndinni var ég allaveganna ekkert sérstaklega inn í plottinu og þá voru mörg spennuatriðina bara þýðingarlaus fyrir mér og þannig ekkert spennandi.

Öllu á botninn hvolft þá var Quantum of solace vonbrigði en hún var samt ekkert lélegri en margar aðrar bond myndir. Hreinlega held ég að myndin sér bara léleg í samanburði við fyrirrennara hennar en tekin úr því samhengi sé hún bara allt í lagi. Það er nefninlega mjög sjaldgæft að framhöld séu betri, hvað þá margfalt betri eins og dark knight.

1 ummæli:

Siggi Palli sagði...

5 stig. Sammála, allt of mikill hasar fyrir Bond-mynd.