
Myndin snýst um fund nasistaflokksins í Nuremberg 1934 og byrjar á innkomu Hitlers á fundinn með flugvél þar sem hann flýgur inn rétt eins og guð.
Næst tekur við tveggja klukkustunda marsering nasista um Nuremberg haldandi á skóflum í stað rifla og inn á milli sjást brot úr ræðum Hitlers og annarra leiðtoga nasistaflokksins.

Eins og ég gaf til kynna þá var myndin drepleiðinleg og umhorfs var í stofunni eins og gasklefa útrýmingabúða nasista. Það breytir því þó ekki að myndin var áhugaverð. Triump des Willens er epísk áróðursmynd gerð af 172 manna crewi, þar af 36 tökumönnum með 30 myndavélar og endalaus budget. Tökur á myndinni stóðu yfir fjögurra daga fund nasista í Nuremberg og afraksturinn var 61 klukkutími af myndefni sem var svo klippt í tæpar 2 klst. Til gamans má geta þá svaf Riefesthal í klippiherberginu, stútfullu af filmum til að geta klárað að klippa myndina á réttum tíma.

Það var alls ekkert auðvelt að horfa á Triumph des Willens en samt sem áður er ég nokkuð ánægður með að hafa gert það. Myndin er merkileg í kvikmyndasögulegu samhengi og gefur ótrúlega innsýn í þriðja ríkið.
1 ummæli:
Ágæt færsla. 4 stig.
Skrifa ummæli