Einn af unglingunum á fylleríinu er Tom Hanniger. Hann kemst undan Warden og eftir þennan atburð yfirgefur hann Harmony þangað til 10 árum seinna snýr hann aftur, eftir 8 ára vist á geðsjúkrahúsi (kemur fram í lokin) og morðin halda áfram. ** spoiler endar ** My bloody valentine er fyrsta hryllings-spennumyndin sem er skotin í þrívídd. Maður hafði náttúrulega þvílíkar eftirvæntingar til myndarinnar sem töff bíó þrívíddar upplifunar og ég vissi eiginlega að myndin sjálf yrði léleg og ég var hálfpartinn að vona að hún yrði bara ógeðsleg og kannski pínu fyndin en fyrst og fremst skemmtileg.

Ég hafði ekki séð þrívíddarmynd síðan ég var kannski 8 ára gamall og þess vegna fílaði ég í botn alltaf þegar eitthvað töff þrívíddar móment kom. Ég tók hins vegar fljótt eftir því hversu hræðilega illa myndin var skrifuð og hvað leikararnir voru skelfilegir. Fyrsta hálftímann eða svo lét það ekkert fara í taugarnar á mér og ég reyndi að sannfæra sjálfan mig um að þetta ætti bara að vera svona lélégt, að það ætti að vera svona b-myndar fílingur í henni. Á einum tímapunkti fannst mér eins og leikarnar væru að reyna á sig að vera ósannfærandi. Þeir sem hafa ekki séð myndina hugsa örugglega þegar þeir lesa þetta að þetta sé tómt pjatt í mér en ég hvet þá sömu til þess að sjá myndina.
Ég fór að tjékka á leikurunum í myndinni á wikipedia, bara til að sjá hvort þetta séu ekki alveg örugglega atvinnuleikarar og þá sá ég að aðalleikarinn í myndinni er semsagt þekktastur fyrir hlutverkið sitt í sápunni Days of our lives. Ég hélt að sá þáttur væri bara djók í Friends en fyrir þá sem vita það ekki þá lék Joey Tribbiani í þeim.

Þrátt fyrir að myndin hefði verið hrikalega léleg þá átti hún bara að vera skemmtileg og hún var það vissulega. Það að myndin hefði verið í þrívídd var alveg nóg til þess að lífga upp á annars ansi gelda slasher unglingamynd. Ég vildi bara að óska þess að hún hefði verið, ef ekki bara pínulítið betur skrifuð og örlítið betri leikin. Þá hefði hún gjörsamlega hitt í mark.
1 ummæli:
Fín færsla. 5 stig.
Vá, hvað þessi fór alveg fram hjá mér. Ekki það að ég hefði farið á hana, en ég hafði bara ekki hugmynd um að þessi mynd hefði verið í bíó.
Skrifa ummæli