31 mars 2009

Gran Torino

Ég sá myndina Gran Torino um daginn. Gran Torino skartar Clint Eastwood í aðalhlutverki auk þess sem hann framleiðir hana. Sjálfur þekki ég Clintarann bara af seinni tíma myndum hans eins og Million Dollar Baby og það er í raun hálf vandræðalegt að þurfa að viðurkenna það að ég hef aldrei séð almennilega Clint Eastwood mynd eins og Dirty Harry eða The Good, The bad and the ugly en þær eiga víst að vera epískt svalar.

Söguþráður Gran Torino er ótrúlega einfaldur og myndin er í rauninni eins og dæmisaga. Í örstuttu máli þá er Clint grautfúll íhaldssamur ekkill og nýfluttir nágrannar hans eru asískir innflytjendur. Þrátt fyrir að líka illa við þau að eðlisfari þá líður ekki á löngu þar til hann vingast við þau og bjargar einum þeirra frá glæpaklíku. Ég ætla ekki að fjalla meira um innihald myndarinnar því þá þyrfti ég að fara að setja upp spoiler viðvararnir.

Allaveganna þá líkist söguþráður myndarinnar dæmisögu eins og áður kom fram og ég get ekki sagt annað en að ég hafi fílað það. Söguþræðir bíómynda þurfa nefninlega ekkert að vera flóknir til að gera þá áhugaverða og oft eru geðveikar myndir byggðar á einfaldri hugmynd. Þetta gaf mér smá innblástur hvað varðar lokaverkefnið okkar og ég reyndi að kynna mér einhverjar einfaldar, sígildar sögur sem væri hægt að setja í nýjan búning og myndu henta í stuttmynd. Ég varð hins vegar engu nær og þegar að við vorum loksins komin með myndavélina leit þetta út fyrir að vera vonlaust. Það er einhvern vegin ekki hægt að vera kreatívur þegar maður nauðsynlega þarf þess. Þetta endaði svo á því að ég fékk þá hugdettu að sækja hugmyndir í Twilight Zone. Fyrir þá sem ekki vita það þá eru það 30min eða 60min langir þættir sem komu fyrst út 1959-64 og svo aftur 1985-89 og síðast 2002-2003 en þeir síðustu voru sýndir á skjá einum á sínum tíma. Þættirnir eru með Sci-Fi ívafi og allir þættirnir sjálfstæðir og þess vegna gífurlega mikið samansafn skemmtilegra hugmynda. Ég eyddi 2 klst+ í að skoða hvern einasta þátt til að finna einhverja góða hugmynd sem hægt væri að útfæra auðveldlega. Mér þótti virkilega merkilegt að fara í gegnum þetta því það var augljóst að efni sumra þáttanna hafði verið gert gert að bíómyndum eins og t.d. Truman Show.

En aftur að Gran Torino. Ég get ekki sagt að ég hafi verið hrifin af myndinni. Hún hefur nokkra góða spretti en í heildina séð þá fannst mér hún ekkert sérstaklega merkileg. Það sem skemmdi fyrir myndinni var meðal annars hversu illa Tao var leikinn. Hann slapp með það svona stærsta hluta myndarinnar en þegar mest á reyndi var hann bara ekki að gera sig. Einnig í lokin á myndinni þegar myndin er í rauninni búin og lokatitlarnir eru farnir að rúlla þá tekur Clint Eastwood lagið nema eins og maður getur rétt ímyndað sér þá getur maðurinn ekki sungið. Þetta kemur myndinni sjálfri ekkert sérstaklega mikið við en mér fannst þetta grafa örlítið undan annars dramtískri mynd.

1 ummæli:

Siggi Palli sagði...

Mér fannst þessi nú nokkuð góð. Eastwood var einstaklega skemmtilegur í hlutverki gamla fýlupúkans. Og mér fannst lokalagið bara soldið sætt...

En fín færsla engu að síður. 6 stig.