31 mars 2009

Waltz with Bashir

Waltz with Bashir er Ísraelsk mynd sem kom út árið 2008 og var tilnefnd til óskarsverðlauna sem besta erlenda bíómynd.

Myndin fjallar um Ari Folman sem í byrjun myndarinnar hittir gamlan félaga úr Ísraelska hernum sem segir honum að hann fái sömu martröð hverja nóttu eftir að þeir tóku þátt í Lebanon stríðinu árið 1982, þá aðeins 19 ára gamlir. Það þykir Ari mjög sérstakt vegna þess að hann hefur engar sérstakar minningar frá þessu tímabili. Ari gerir þá það að markmiði sínu að komast að því hvað gerðist og ennfremur afhverju hann muni ekki eftir neinu. Ari kemst fljótt á sporið og myndin tengist fjöldamorðum í Lebanon stríðinu sem Ari og félagar hans tóku óbeinan þátt í. Myndin gengur mjög mikið út á viðtöl við gamla félaga hans og stór hluti myndarinnar gerist í endurminningarsenum (flashback). Það er voðalega erfitt að átta sig á því hvernig mynd Waltz with Bashir er. Myndin er sögð vera heimildarmynd en samt sem áður virkar hún á áhorfandann eins og hún sé gerð eftir handriti. Hún virkaði þannig a.m.k. á mig og ég sá seinna á wikipediu að einhverjar persónurnar eru uppspunnar og þess vegna veit ég ekki beint hvað maður á að hugsa. Það er kannski einfaldast og réttast að hugsa um myndina sem sjálfsuppgötvunar ferðalag eins manns sem segir frá því með bíómynd og tekur sér listrænt frelsi til að segja frá því eins og honum sjálfum listir.

Ég gleymdi líka að nefna að Waltz with Bashir er teiknimynd. Það flækir málin enn frekar þar sem að myndin er heimildarmynd með viðtölum þar sem viðmælandi er teiknaður og er stillt upp á móti “myndavélinni” nákvæmlega eins og ef um væri að ræða kvikmyndaða heimildarmynd. Hvað varðar teiknimyndastílin er hann virkilega flottur og minnir á teiknimyndasögustíl. Stíllinn minnti mig mjög mikið á teiknimyndina A Scanner Darkly en hún var gerð með aðferð sem kallast víst Rotoscoping en það kallast það þegar teiknað er yfir alvöru kvikmyndaða mynd.

Waltz with Bashir var hins vegar ekki gerð með rotoscoping heldur var hún teiknuð frá grunni. Teiknuð heimildarmynd hljómar eflaust svolítið skringilega en þetta formatt hentar Waltz with Bashir fullkomlega. Myndin gerist mjög mikið í flashbökkum og því hjálpaði stíllinn myndinni að gera þessi atriði draumkenndari og stundum flottari. Fyrst og fremst held ég að þessi stíll hafi verið valin vegna þess að hann leyfir kvikmyndagerðamanningum, Ari Folman, að gera myndina eins og hann vill gera hana án þess að þurfa að kosta of mikið. Myndin hefði eflaust verið mun dýrari og erfiðara hefði verið að gera hana ef hún hefði verið leikin. Einnig í þessu ljós þá tapar myndin engu í sambandi við áhrif á áhorfanda sem teiknimynd. Tónlistin var líka mjög flott og allir hljóðeffektar. Hins vegar til að setja eitthvað út á myndina þá fannst mér hún stundum aðeins of hröð. Að öllu jöfnu þá er ég á móti því að myndir teygji lopann og mín skoðun er að myndir eigi aldrei að verða lengri en þær þurfa að vera. Í Waltz with Bashir eru nokkur mjög dramatísk atriði sem hefðu eflaust notið sín betur ef þeim hefði ekki flýtt eins mikið.

Til að summa upp þá er Waltz with Bashir klárlega með áhugaverðari myndum sem ég hef séð. Myndin er einnig bæði einlæg og falleg og teiknimyndastíllinn er flottur.

Trailerinn:

1 ummæli:

Siggi Palli sagði...

Önnur mynd sem mig langar mikið að sjá.

Og önnur mjög fín færsla. 7 stig.