
Watchmen er hins vegar byggð á traustum grunni. Watchmen er byggð á teiknimyndaskáldsögu eftir Alan More en hann samdi m.a. teiknimyndasöguna V for Vendetta og League of Extraordinary Gentlemen.

Allt sem viðkemur Watchmen heiminum er ótrúlega töff, áhugavert og útpælt. Myndin gerist árið 1985 í öðrum veruleika þar sem ofurhetjur eru til og kjarnorkustyrjöld,og um leið gjöreyðing, virðist óumflýjanleg. Ofurhetjur Watchmen eru ekki hallærislegar stereótýpur heldur eru þær flóknar og hver og ein hefur mismunandi forsögu og hvata. Ofurhetjur Watchmen hafa enga augljósa ofurkrafta nema einn þeirra og hann virðist vera næstum almáttugur.

Það eru skiptar skoðanir um Watchmen. Mér sýnist fólk annað hvort fíla hana í botn eða finnast hun ofmetin. Ég hef lesið á mörgum stöðum að plottið sé of flókið nema fyrir þá sem hafa lesið bókina. Ég get ekki verið meira ósammála því ég hef sjálfur ekki lesið bókina en náði plottinu. Það sem mér líkaði við Watchmen var hversu útpældar persónurnar eru og hvað þær eru flottar. Rorschach og The Comedian sitja í manni eftir myndina. Allt hið sjónræna í myndinni er einnig algjört meistaraverk. Litasamsetningin, búningarnir og kvikmyndatakan er svo flott að það verður seint toppað. Enda ekki við öðru að búast af leikstjóranum Zack Snyder sem leggur mikið upp úr hinu sjónræna þó svo að það hafi komið niður á síðustu mynd hans 300 sem verður að teljast feilspor. Ég verð þó að játa að mér fannst hún kúl í bíó en held að ég muni aldrei horfa á hana aftur.

Sumir Watchmen aðdáendur virðast vera sárir yfir því að vissum þáttum í myndasögunni hefur verið sleppt í myndinni. Ég hef ekki lesið bókina en mér skilst að myndin sé næstum því eins og bókin leggur sig og sum skotin líta nákvæmlega eins út og rammi í bókinni. Vegna þess að myndin fylgir bókinni svo ítarlega er myndin heilir 2 tímar og 40 mín. Sjaldan hafa þó rúmlega tvær og hálf klukkustund liðið jafn hratt í kvikmyndasal því myndin rígheldur manni. Sama get ég þó ekki sagt um aðra bíógesti og ég hef aldrei á minni löngu ævi upplifað jafn mikla truflun í bíósal. Það er sjaldgæft að myndir sem eru svona langar hafi jafn heilsteypt plott. Í þessu samhengi man ég að þegar ég sá Dark Knight fannst mér myndin hafa endað tvisvar ef ekki þrisvar. Í hléinu leið mér eins og myndin væri búin en ekki hálfnuð.
Ég get ekki sagt annað en ég hafi verið stórhrifin af Watchmen og ég skil ekki afhverju það eru svona skiptar skoðanir um hana.
1 ummæli:
Enn önnur mynd sem mig langar að sjá.
Fín færsla. 8 stig.
Skrifa ummæli