.jpg)
Myndin fjallar um Roger Thornhill sem er rænt af tveimur henchmen í upphafi myndarinnar sem halda að hann sé njósnari og þá fer af stað atburðarás sem endar með því að hann er grunaður um morð á diplómata Sameinuðu þjóðanna. Thornhill flýr þá frá New York til Chicago og endar myndin í bardaga upp á Mount Rushmore. Í trailernum fyrir myndina kemur Hitchcock persónulega fram og talar um myndina sem ferðalagi með Alfred Hitchcock travel inc. og lýsir myndinni í gríni sem ferðalagi frá áhyggjum, sitjandi í bíósæti. Tjekkið á trailernum hérna fyrir neðan.
Nú er þetta önnur 50´s mynd sem ég horfi á í röð og ég veitti því sérstaka athygli að í báðum myndunum er mennirnir gamlir og konurnar mjög ungar. Í Vertigo var James Stewart 51 árs og ástkona hans 26 ára. Í North by Northwest var Cary Grant 54 ára og Eva Marie Sant 26 ára (í myndinni, 35 í alvörunni). Í Vertigo skipti aldur Stewart í rauninni engu máli en North by Northwest er action mynd og þessvegna fannst mér pínu furðulegt að hafa svona gamlan mann í henni sem átti samt ekki viljandi að vera gamall.
Þegar Hitchcock gerði Nort by Northwest vildi hann hverfa frá því sem hann hafði áður gert og gera létta og skemmtilega mynd sem væri laus við symbolisma sem einkenndi fyrri myndir hans. North by Northwest er þessvegna gjörólík Vertigo og minnti mig mjög mikið á Bond myndir. Í rauninni þá vantar ekkert upp á: í myndinni er bondgella, illmennið heitir Van Damn (halló!), og myndin er á sífellu flakki á milli flottra tökustaða rétt eins og í Bond mynd.
.jpg)
North by Northwest situr í 26. sæti á topp 250 myndir á imdb og er af mörgum talin gullmoli kvikmyndasögunnar. Myndin hafði hins vegar ekki svo mikil áhrif á mig. Myndin var góð, sérstaklega fyrri hluti myndarinnar, en ég myndi varla kalla hana meistaraverk. Hins vegar get ég vel ýmindað mér að hún hafi haft mikil áhrif þegar hún kom út. Í myndinni er nokkrar epískar senur eins og atriðið þegar skotið er a Cary Grant úr flugvél á akrinum og klímaxinn á Mount Rushmore. Þessi atriði hafa örugglega þótt miklu epískari árið 1959 og haft meiri áhrif á áhorfandann heldur en þau gera núna. Einfaldlega vegna þess að ég held að þetta hafi ekki verið gert áður. Ég þori ekki að fullyrða þetta en mér finnst þetta ansi líklegt.
Í sambandi við pælinguna mína um að myndi hefði verið nýjungagjörn þá las eg einmitt að North by Northwest hefði verið fyrsta bíómynd sem hefði verið gerð með titlum á hreyfingu. Án þess að pæla neitt sérstaklega í því að titlarnir væru á hreyfingu þá tók ég strax eftir því þegar titlarnir voru að rúlla að myndin væri miklu nútímalegri heldur en Vertigo. Hérna fyrir ofan er video af titlunum, þið getið borið þá saman við titlana við vertigo sem fylgdi síðasta bloggi. Í lokin á klippunni sést svo Hitchcock sjálfur í cameo-hlutverki.
1 ummæli:
Fín færsla. 7 stig.
Skrifa ummæli