28 febrúar 2009

Rettur


Þegar Óskar Jónasson kom til okkar fyrr í vetur í sambandi við nýjustu mynd sína Reykjavík-Rotterdam sagði hann okkur frá því að samstarfsmaður hans Sigurjón Kjartansson væri að reyna að búa til góða íslenska spennuþætti. Sigurjón hefur verið ansi afkastamikill því fyrir utan að hafa komið að gerð Reykjavik-Rotterdam hefur hann unnið að gerð a.m.k. þriggja íslenskra spennuþátta sem hafa verið sýndir núna í ár og í fyrra. Þeir eru Pressan, Svartir Englar og núna Réttur.
Réttur eru nýjustu þættirnir og þeir fjalla um lögfræðinginn Loga Traustason. Þættirnir eru 6 talsins og hver þáttur er um 50 mín langur. Þetta er semsagt þetta standard spennuþátta-format eins og við þekkjum úr þáttum eins og Dexter
Í hverjum þætti fást Logi og samstarfsmenn hans við ýmis lítil mál sem geta annað hvort verið hlægileg eða hádramatísk. Auk þeirra kemur svo hægt og bítandi í ljós aðalplott þáttaraðarinnar.

Það er ekkert auðvelt að búa til íslenska spennuþáttaröð. Ég reyndi að horfa á bæði Svarta Engla og Mannaveiðar, sem voru líka sýndir í vetur, og gafst upp á þeim báðum. Ástæðan var að mér fannst þeir vera of stirðir, þ.e. handritið og samtölin óraunveruleg og leikararnir of einbeittir að skýrum framburði að þættirnir töpuðu öllum raunveruleikablæ. Réttur er hins vegar fyrsta íslenska spennuþáttaröð sem ég hef dottið inn í og mér finnst ótrúlegt hversu vel heppnaður hann er. Þátturinn er mjög smooth en það er nauðsynlegt fyrir alla spennuþætti eins og þennan. Einnig þá er hann furðu vel skrifaður sem og leikinn. Í aðalhlutverki í þáttunum er Magnús Jónsson. Ég hef aldrei séð hann áður en röddin hans var mjög kunnuleg því hann talaði m.a. fyrir Bósa ljóssár. Mér fannst það mjög nett að hafa einhvern í aðalhlutverki sem ég hafði ekki séð áður og ég er á þeirri skoðun að ef að t.d. Hilmir Snær (með fullri virðingu fyrir honum) ,eða aðrir jafn áberandi leikarar hefðu hreppt aðalhlutverkið, hefðu þættirnir ekki virkað jafn vel á mig og þeir gerðu.

Réttur er eins og ótrúlega dæmigerður bandarískur spennuþáttur um lögfræðistofu. Hann er eiginlega svo týpískur að maður myndi ekki horfa á hann ef hann væri í alvörunni bandarískur þáttur en út af því að hann gerist á Íslandi þá er hann ferskur og miklu skemmtilegri fyrir vikið. Sem dæmi um hversu týpiskur hann er þá er aðalpersónan algjör töffari sem sefur hjá hvaða konu sem hann girnist. Hann fer líka í ljós, klæðist flottum jakkafötum og á við drykkjuvandamál að stríða. Hann býr í bacheloríbúð í þingholtunum og lögfræðistofan sem hann vinnur á er í Turninum í Kópavogi. Út frá ofanrituð mætti maður halda að aðalpersónan væri algjör klisja. Það er líka alveg rétt. Það er greinilegt að Sigurjón Kjartanson er ekki að taka sig svo alvarlega að hann vilji búa til spennuþætti sem eru svo raunverulegir að þeir verða leiðinlegri fyrir vikið – heldur sé hann fyrst og fremst að reyna að búa til gott sjónvarpsefni.

Þátturinn fær lánaða hluti héðan og þaðan úr sjónvarpi. T.d. mátti sjá nokkra augljósa Boston Legal takta stundum og þótti mér það algjör snilld að sjá einhverju því líkt í íslensku sjónvarpi. En þátturinn fær einnig lánaða hluti úr íslenskum raunveruleika. Tvisvar í þættinum komu upp mál sem ég kannaðist eitthvað við og mundi ég þá eftir því að ég hafði lesið um það á vísi.is löngu áður! Það voru svona hálfpartinn íslensk furðumál eins og þegar sýslumaðurinn á Selfossi kærði konu sem lenti í bílslysi fyrir að hafa stofnað lífi mannsins síns í hætti sem var farþegi í bílnum.
Til að summa þetta upp er Réttur mjög vel heppnaður og ég bíð spenntur eftir framhaldi en síðasti þátturinn benti til þess að það yrði gert framhald. Ég er mjög ánægður með að loksins skyldi koma góður íslenskur spennuþáttur og ég hálfpartinn sé eftir því að hafa gefist jafn auðveldlega upp á Svörtum Englum fyrst mér þótti Réttur svona vel heppnaður.

1 ummæli:

Siggi Palli sagði...

Fín færsla. 7 stig.

Verð greinilega að kíkja á þessa.