26 september 2008

Sveitabruðkaup


Núna eru liðnar um það bil tvær vikur síðan ég sá Sveitabrúðkaup og að leikstjóri myndarinnar, Valdís Óskarsdóttir kom í tíma til okkar og sagði frá gerð myndarinnar.

Sveitabrúðkaup er fyrsta mynda sem Valdís Óskarsdóttir leikstýrir en hún hefur unnið sem klippari í mörg ár og klippt myndir eins og Festen og Eternal sunshine.

Sveitabrúðkaup er íslensk gamanmynd sem fjallar um brúðkaup Ingu og Barða sem á að eiga sér stað í sveitakirkju. Vandamálið er hinsvegar að finna kirkjuna og sýður upp úr öðru hverju í gegnum myndina og átök eiga sér stað milli ólíkra karaktera.

Ekkert handrit var skrifað fyrir Sveitabrúðkaup heldur var aðeins búinn til nákvæmur söguþráður. Flest samtölin og minni háttar atburðir eru hreinn spuni leikaranna. Fyrir tökur myndarinnar fengu leikararnir það hlutverk að búa til karakterinn sinn auk þess sem hver og einn í myndinni fékk ákveðið leyndarmál sem aðrir leikarar vissu ekki af. Þetta gerði það svo að verkum að öll samtöl í myndinni eru mjög eðlileg og leikararnir gátu skotið inn bröndurum eins og þeir vildu.
Þetta fyrirkomulag með leyndarmálin og spunann var líka sérstaklega skemmtilegt eftir á þegar Valdís kom í tíma til okkar og sagði okkur frá þeim. Þá fór maður að pæla í myndinni og velta því fyrir sér hvaða leyndarmál persónunar höfðu eins og t.d. með Barða og hvalfjarðargönginn.

Öllu á botninn hvolft: Sveitabrúðkaup kom virkilega á óvart og var betri en ég átti nokkurn tímann von á. Það var sérstaklega skemmtilegt að fá Valdísi í tímann vegna þess hve óvenjuleg gerð myndarinnar var.

21 september 2008

Bjolfskviða

Beowulf er gerð eftir Bjólfskviðu og leikstýrð af Robert Zemeckis. Robert Zemeckis er gamall hollywood spaði og gerði myndir á borð við Back to the Future og Forrest Gump. Zemeckis virðist hafa þróað með sér smekk fyrir teiknimyndum en Beowulf (2007) og síðustu verkefni hans, The Polar Express (2004) og A Christmas Carol (2009) eru einmitt teiknimyndir.


Beowulf er flottasta þríviddar teiknimynd sem ég hef séð, hún er svo flott að maður trúir varla að hægt sé að teikna eitthvað svo raunverulegt. Teiknimyndaformið hentar myndinni líka sérstaklega vel, ef að myndin hefði verið leikin hefðu sum lykilatriði í myndinni hreinlega ekki verið jafn vel heppnuð.

Beowulf skartar ýmsum frægum leikurum eins og Angelina Jolie, Anthony Hopkins og John Malkovich. Rödd Beowulfs sjálfs er Ray Winstone sem er örugglega frægastur fyrir að hafa leikið Mr. French í The Departed.

Það sem gerir Beowulf sérstaka er að hún var teiknuð með "Motion capture" tækni. Þá klæðast leikararnir göllum alsettum nemum og svo leika þeir fyrir framan myndavélina. Sjá meðfylgjandi mynd. Motion capture tæknin er nú ekkert nýtt af nálinni, hún hefur verið notuð við gerð tölvuleikja í mörg ár og líka í bíómyndum, sjá t.d. Gollum í LOTR. Hins vegar þá er þetta í fyrsta sinn sem ég hef séð þetta gert með heila bíómynd.