28 janúar 2009

Slumdog Millionaire


Ég sá Slumdog Millionaire um daginn. Slumdog Millionaire er byggð á bók eftir Vikas Swarup. Myndin gerist í Indlandi og fjallar um fátækan múslimastrák sem elst upp í fátækrahverfi mumbai. Í byrjun myndarinnar er Jamal á lögreglustöð og sætir pyntingum vegna þess að hann hefur þegar unnið sér inn 10.000.000 rúblur í viltu vinna milljón og eina útskýring hlýtur að vera að hann sé að svindla.
Jamal er hins vegar ekki að svindla þótt hann hafi hlotið nánast enga formlega menntun en af algjörri tilviljun eða örlögum veit hann svarið við flestum spurningunum og er það ekki vegna þess hve gáfaður hann er heldur vegna þess að á bakvið hvert svar er lítil saga og saman segja þær frá æsku Jamal.
Sagan flækist enn frekar þegar að kemur í ljós að hann er í raun ástfanginn af æskuvinkonu sinni og í rauninni hafi hann farið í þáttinn til að ná athygli hennar.
Slumdog Millionaire er allt í senn þroskasaga og ástarsaga en hún er líka fyndin á köflum og það kórónar það allt saman að myndin skyldi gerast í Indlandi sem gerir hana enn áhugaverðari.

Í mörgum bandarískum eða breskum myndum þar sem persónurnar eiga að vera útlenskar eins og t.d. Slumdog. Þá er eins og leikstjórinn og leikararnir eigi í stökustu vandræðum með það hvort þeir eigi að tala með hreim eða hvort myndin eigi að vera á útlensku (eins og Passion of the Christ!) eða þá hvort þessu eigi að blanda saman. Ég sá myndina Defiance um daginn sem á að gerast í Póllandi og leikararnir eru bandarískir og breskir en leika pólverja. Í myndinni töluðu þeir með svona slava hreim sem mér persónulega finnst pínu steikt en samt sem áður var það eiginlega nauðsynlegt því annars hefði maður fengið á tilfinningu að þetta væru bretar (n.b. Daniel Craig er í aðalhlutverki). En í þeirri mynd er líka blandað saman alvöru pólsku með enskum texta og mér fannst þetta engan veginn nógu smooth umbreyting því ég tók strax eftir þessu. Nóg um defiance.
Í Slumdog var blandaða leiðin farin og það er talað bæði indverska og enska og bæði blandað saman. Stórfurðulega þá bara svínvirkar þetta og þó maður taki eftir þessu, eðlilega, þá er það natural.

Slumdog hefur verið tilnefnd til 10 óskarsverðlauna og eru þau m.a. fyrir besta leikstjóra, kvikmyndatöku, klippingu, besta aðlagaða handrit og tónlist.
Til að kommenta á klippinguna og kvikmyndatökuna þá var mér sérstaklega minnistætt eitt atriðið úr myndinni – þegar jamal og bróðir hans eru litlir og er hent út úr lest á ferð og lenda á sandhóli og veltast í sandinum og þegar þeir eru hættir að veltast þá er skipt um leikara og nýjir, aðeins eldri leikarar taka við. Mér fannst það virkilega smooth kaflaskil. Einnig þegar þeir eru að veltast í sandinum koma skot af strákunum sem eru tekin af andlitunum þeirra og svo er sandi hellt yfir þá. Þessi skot voru bara örfáar sekúndur en mér fannst þau virkilega nett og þau bjuggu til svona “sand-í-fésið” tilfinningu.

26 janúar 2009

man bites dog



Í þar síðasta bíótíma var myndin Man bites dog sýnd. Myndin er frá belgíu, nánar tiltekið frá suðurhlutanum þar sem franska er töluð. Myndin er mockumentary þ.e. hún er leikin og sagan á sér enga stoð í raunveruleikanum en hins vegar er hún tekin upp eins og heimildamynd þannig að maður upplifir myndina eins og hún sé í raun ekta.

Man bites dog fjallar um raðmorðingjann Benoit og einnig bregður fyrir kvikmyndagerðamönnunum sem eru að taka upp myndina um hann. Fyrst um sinn er Benoit sýndur að spila á pianó og gera aðra hversdaglega hluti en það líður ekki á löngu þar til hann fer að drepa (af óskiljanlegum ástæðum) póstmenn og þaðan fram eftir götunum.

Í myndinni skiptir atburðarrásin ekki eins miklu máli og persónusköpunin og hvernig persónurnar þróast. Í rauninni er bara verið að taka mynd um þennan gæja og það er verið að drepa fólk. Ég man ekkert sérstaklega eftir því hvað gerðist í myndinni en það sem situr eftir í mér (og þessi mynd situr í manni!) er persónan Benoit.

Ég á voðalega erfitt með að lýsa Benoit því hann er bæði pínu sympatískur en í senn gjörsamlega geðsjúkur og viðbjóðslegur. Benoit á fáa vini sem eru hrædd við hann og þora ekki að andmæla honum sbr. þegar hann skýtur óvart einn afmælisgestinn í hausinn í afmælisveislunni sinni og hinir halda bara áfram að borða afmæliskökuna skíthrædd og útötuð í blóði. Benoit reynir líka að vingast við tökuliðið og býður þeim út að borða og þeir þora ekki að andmæla honum og koma út úr sér einhverjum afsöknunum skömmustulegir á svip. Benoit er nefninlega þessi típa sem allir reyna að forðast eins og þeir geta og passa sig að gera ekki neitt sem honum gæti mislíkað því hann er svo óútreiknanlegur, hann gæti bara drepið mann. Hann er mjög flókinn persóna og þess vegna finnst mér voðalega erfitt að lýsa honum en aðalmálið er að maður þekkir alveg týpuna og þess vegna situr hann pínu í manni.

Í myndinni er einnig mjög áhugavert hvernig tökuliðið þróast. Í fyrstu taka þeir engan þátt í því sem Benoit er að gera og eins og ég sagði áðan þá eru þeir frekar hræddir við hann. Hins vegar þróast það á þann veg að þeir fara að hjálpa benoit með morðin. Seinna deyr hljóðmaðurinn og enn seinna annar maður úr tökuliðinu til viðbótar en í staðinn fyrir að hætta við að gera myndina og átta sig á þessari vitleysu og geðveiki þá sökkva tökumennirnir enn dýpra í þessa geðsjúku veröld Benoits.


Man bites dog er mjög ofbeldisfull og á einum tímapunkti var mér gjörsamlega misboðið. Það var þegar Benoit og tökuliðið voru búnir að vera á fylleríi að syrgja vin sinn úr tökuliðinu og það er búið að henda þeim út af barnum og þeir brjótast inn í hús og hópnauðga konu (n.b. Benoit og tökuliðið) að manni hennar ásjáandi og næsta skot er þegar þeir eru búnir að slátra þeim báðum. Sem betur fer er myndin svart/hvít því annars held ég að ofbeldið og blóðið hefði farið yfir strikið.

Man bites dog er fínasta mynd en fyrst og fremst hafði ég gaman að henni vegna þess að þetta er einmitt svona öðruvísi mynd sem ég hefði ábyggilega aldrei heyrt um eða horft á ef það væri ekki fyrir bíótímana.

05 desember 2008

Queen Raquela

Ég er búinn að vera að fresta því að skrifa um Queen Raquela. Blogg-efniviðurinn er hins vegar á þrotum og auk þess skulda ég eina færslu um myndina.

Queen Raquela fjallar um filippeyska kynskiptingin Raquela sem vinnur við vændi í borginni Cebu. Raquella er óánægð með lífið og henni finnst hún eiga meira skilið. Hana dreymir, eins og öðrum filipeyskum kynskiptum, um að hitta vestrænan mann en einnig um að fara til Parísar. Til þess að láta draum sinn verða að veruleika byrjar Raquela að vinna í webcam klámi og kynnist Michael sem rekur klámsíðuna sem hún vinnur hjá. Raquela kynnist Michael persónulega og þau eiga í einhvers konar sambandi í gegnum síma og netið. Raquela kynnist svo öðrum transgender í gegnum facebook og það er Valerie Grand sem er íslensk. Löng saga stutt: Raquela fer til Parísar með Michael og kemst að því að hann er algjör auli og myndin endar á því að hún er kominn aftur til Cebu.

Það var margt í myndinni sem ég var ekki sáttur við. Í fyrsta lagi fannst mér aðalpersónan í myndinni bara hafa enga burði til að aðalpersóna í bíómynd. Hún hafði nefninlega enga sögu að segja eða reynslu. Hún vakti líka enga samúð með áhorfandanum og hún fór eiginlega bara í taugarnar á mér vegna þess hve mótsagnakennd hún var. Til dæmis þá talaði hún um betra líf en samt var hún að selja sig út á götu (af neyð – það er skiljanlegt) en gerði það hins vegar óvarið (!!) og ofan á það neytti hún fíkniefna. Í rauninni var hún bara ekkert sérstök nema fyrir það að vera með tippi.

Á meðan ég var að horfa á myndina hugsaði ég með mér að formattið á myndinni væri nú samt svolítið töff. Þ.e. gervi-heimildamyndaformattið. Mér fannst það ágæt tilbreyting að karakterarnir skyldu tala beint við áhorfandann til að láta í ljós hugsanir sínar og líðan í staðinn fyrir að það skyldi látið í ljós í samskiptum við aðra karaktera. Hins vegar þótti mér þetta vera verri og verri hugmynd því meira sem ég hugsaði út í það því hún er eiginlega bara ruglandi. Ef að viðfangsefnið yrði nógu áhugavert og áhugavekjandi til þess að það myndi sitja í manni þá myndi maður bara týnast í hugsununum um hvað hefði verið raunverulegt og hvað var bara plat.

Þótt að mér hafi ekki þótt myndin góð þá er það samt þannig að maður er í kvikmyndagerðaáfanga og maður ætti að draga dóm af því sem tekið er fyrir. Þegar maður er að læra hluti er talað um “the do´s and donts”. Við erum búin að sjá geðveikar myndir í vetur og það er alveg jafn nauðsynlegt að horfa á slæmar myndir og læra af þeim – the dont´s. Sem dæmi um það man ég eftir því að hafa hugsað með mér þegar ég sá Ketil á Reykjavik Shorts n´ docs að maður ætti aldrei að teygja lopann. Sú mynd hafi nefninlega allt potential til að vera mjög góð mynd en hún var bara allt of löng og varð þess vegna langdregin.

Eitt annað sem fór í taugarnar á mér í myndina var að mér fannst engin skýr niðurstaða fást í endann á myndinni. Myndin endaði þannig að hún bara allt í einu komin til Cebu aftur og mér fannst hún ekki hafa tekið neinum breytingum. Myndin er hálfgerð road movie og forsenda þeirra er að það gerist eitthvað á “á veginum” sem breytir persónuni og hún þroskast. Eitt gott dæmi um mynd sem endaði á skýrri niðurstöðu er The Cats of Mirikatani sem við horfðum á fyrr í vetur. Í henni snýst líf Jimmy Mirikatani 180 gráður og hann fer frá því að búa á götunni í byrjun myndarinnar í að vera kominn með sitt eigið heimili og kominn í samband við fjölskyldu sína aftur. Þegar maður heldur að myndin sé búin horfir Jimmy svo í augu við fortíð sína og heimsækir fangabúðirnar sem hann dvaldi í fyrir 50 árum síðan. Það var skýr niðurstaða!

Olafur de fleur, leikstjóri myndarinnar kom svo í tíma til okkar. Ég var veikur þegar hann kom en Jói og Steinar sögðu mér að það hefði breytt skoðun þeirra á myndinni. Ég skýli mér á þeim forsendum að ég skrifi frá sjónarhorni hins almenna bíógests sem hefur ekki fengið útskýringar frá leikstjóra myndarinnar. Mig dauðlangar samt til að vita hvað hann sagði.

03 desember 2008

Reykjavik-Rotterdam

Núna þegar prófatörnin er að byrja hef ég ekki haft mikinn tíma til að horfa á myndir en á móti kemur þarf ég að reyna rífa upp bloggstigin mín hérna á síðustu metrunum. Þess vegna ætla ég að koma með eina síðbúna Reykjavík rotterdam færslu.

Reykjavík-Rotterdam er leikstýrð af Óskari Jónassyni og með aðalhlutverk fer Baltasar Kormákur. Einnig koma fram helstu elítu leikarar Íslands og þeir eru til að mynda Ingvar E. Sigurðsson, Þröstur Leó, Ólafur Darri úr Vesturport og einnig Jörundur Ragnarsson sem er kannski nýliðinn í hópnum en hann er ekkert síður þekktur eftir að Næturvaktin og síðar Dagvaktin voru sýnd í sjónvarpinu.
Það er því greinilegt að leikarahópurinn er ekkert annars flokks. Mennirnir sem komu að gerð myndarinnar eru heldur ekkert síðri og á ég þá við Sigurð Kjartansson og Arnald Indriðason ásamt leikstjóranum Óskari Jónassyni sem skrifuðu handritið að myndinni. Ég veit ekki hvort Sigurður Kjartansson hafi verið titlaður sem handritshöfundur en eftir heimsókn Óskars í tímann er nokkuð ljóst að hann hefur komið að sögunni á einhvern hátt. Hann og Óskar eru góðir vinir og unnu saman að þáttunum Svartir Englar sem sýndir voru á rúv í haust.

Myndin fjallar um smáglæpamanninn Kristófer, leikinn af Baltasi, sem vann áður á flutningaskipi og stundaði smygl. Hann smyglar samt bara landa en ekki fíkniefnum þannig að maður hefur samúð með honum. Kristófer var svo tekinn eitt sinn og sat inni fyrir að kjafta ekki frá vini sínum Steingrími. Steingrímur er leikinn af Ingvari E. Sigurðssyni og er verktaki sem gengur mjög vel og er andstæða Kristó sem er algjör lúser. Steingrímur er hins vegar ekki allur þar sem hann er séður og hann girnist gömlu kærustuna sína aftur sem er núna með Kristó. Í byrjun myndarinnar er Kristó orðinn “legit” en neyðist fljótt til að fara á túr aftur.

Reykjavík rotterdam er besta íslenska mynd sem ég hef nokkurn tíma séð. Myndin gengur hreinlega bara frábærlega upp og er mjög vel gerð. Fyrir það fyrsta þá er myndin raunveruleg. Maður þekkir karakteranna alla úr daglegu lífi og fyrir utan það að myndin virkar öll mjög eðlileg á skjánum (sem íslenskar myndir gera oftast ekki!) þá er hún fullkomlega cast-uð. Baltasar kormákur lítur nefninlega alveg út eins og maður hefði ýmindað sér Kristófer út frá handritinu einu! Sama gildir um hina. Mér finnst oft svona vissar típur í raunveruleikanum líta eins út.

Ég bloggaði hérna fyrir stuttu um Quantum of Solace og mér fannst sú mynd ekkert spennandi vegna þess að ég var ekkert að lifa mig inn í söguþráð myndarinnar. Reykjavík rotterdam er algjör andstæða við hana. Hún var nefnilega mjög spennandi vegna þess einmitt að hún var raunveruleg, og hún gerist í okkar veruleika – Íslandi.
Það eru alltaf að koma út einhverjar spennumyndir sem eru svo ýktar að þær verða þar af leiðandi ekkert spennandi og menn vilja oft setja samanmerki milli fjölda sprenginga/drápa og spennu. Mér dettur helst í hug svona 90´s Schwarzenegger myndir eins og Eraeser, sem eru svo gjörsamlega ýktar að þær eru ekkert spennandi. Það er samt vissulega gaman að horfa á þær þrátt fyrir það.

Það besta við reykjavik-rotterdam var samt hversu vel hún er skrifuð. Óskar Jónasson fékk Arnald Indriðason til liðs við sig til að skrifa handritið og greinilegt er að þarna er skothelt samstarf á ferð. Margar af bestu bíómyndum kvikmyndasögunnar hafa verið gerðir eftir bókum og oft virðist sem að leikstjórinn og kvikmyndagerðafólk séu betur til þess gerð að segja söguna en ekki að búa hana til. Í myndinni var fenginn sérfræðingur í spennubókum til að skrifa magnaða sögu og svo annar sérfræðingur í kvikmyndum til að kvikmynda söguna. Minnir pínu á iðnbyltinguna.

Óskar Jónsson kom í tíma til okkar til að segja frá myndinni eftir að allir höfðu séð hana. Óskar var nákvæmlega eins og maður hafði ýmindað sér hann, svalur og afslappaður. Það kom mér á óvart þegar hann sagði okkur að hann hefði ekkert verið inn í fjármögnun myndarinnar. Hann hefði semsagt bara séð um kvikmyndina sjálfa. Vissulega er það strangt til tekið hlutverk framleiðandans að sjá um peningamálin en ég hélt að leikstjórinn hefði allt sem kæmi myndinni við á hreinu, einfaldlega vegna þess að það væri eðli leikstjórans sem stjórnandi.

Mér fannst það líka mjög fyndið þegar hann sagði okkur frá því að á Íslandi væru bara tveir áhættuleikarar og þegar einn þeirra hafði neitað að vinna fyrir þá upphæð sem þeir buðu honum þá hefðu þeir heldur ekki getað fengið hinn vegna þess að fyrri áhættuleikarann hefði talað við þann seinni vegna þess að þeir væru að undirbjóða markaðnum (2 menn).

Öllu á botninn er reykjavík rotterdam frábær bíómynd og besta íslenska mynd sem hefur verið gerð. Ég öðlaðist líka nýja virðingu fyrir íslenskri kvikmyndagerð eftir að hafa séð hana og það er greinilegt að það er hægt að búa til frábærar íslenskar bíómyndir.

02 desember 2008

My Neighbour Totoro


My Neighbour Totoro fjallar um föður og tvær dætur hans, 5 og 8 ára, sem flytja í japanska sveit til að vera nær mömmu þeirra sem liggur veik á sjúkrahúsi. Myndin snýst aðallega um yngri dótturina sem kynnist fljótt skógartrölli sem heitir Totoro. Það gerist svo voðalega lítið í myndinni sem er frásögufærandi og til að gera langa sögu örstutta þá bjargar Totoro deginum.

Myndin er leikstýrð af Hayao Miyazaki og menn vilja meina að myndin sé lauslega byggð á æsku hans en hann sjálfur átti veika móður og var í sífellu að flytja á milli sveita. Myndin gerist einnig um árið 1956 sem er einmitt sá tími þegar Miyazaki hefur verið á svipuðum aldri og Satsuki og Mei sem eru stelpurnar sem myndin fjallar um.

Miyazaki er einn af stofnendum Studio Ghibli sem hefur gefið frá sér allar frægustu anime myndir síðustu ára a.m.k. á vesturlöndum. Þessar myndir eru einnig allar leikstýrðar af miyazaki. Þessar myndir eru til að mynda Princess Monoke, Spirited Away, Howl´s moving castle. Ég sjálfur hef bara séð mestu mainstream anime myndirnar og þær eru allar myndirnar sem ég taldi upp eftir Miyazaki hérna fyrir framan að viðbættum Akira og Ghost in the shell. Gleymdi líka einni góðri, Steamboy.


Eins og áður kom fram þá gerist ekkert voðalega mikið í myndinni. Sagan er mjög hæg en það er líklega vegna þess myndin er barnamynd og vegna þess hve lítið gerist í rauninni í myndinni þá geta mjög ungir krakkir fylgst með sögunni. Þótt að lítið hafi gerst í myndinni þá leiddist mér nú ekkert sérstaklega en þegar aftur er litið þá held ég hefði nú bara látið duga að horfa á þetta atriði hérna á fyrir neðan sem er aðalatriðið í myndinni. Atriðið er alveg heilar 5 min en ef einhver nennir að horfa á það, takið eftir tónlistinni. Mér finnst hún passa fullkomlega við myndefnið.

My Neighbour Totoro er vissulega teiknuð í svona típískum anime stíl en ég á samt mjög erfitt með að kalla hana anime mynd. Ætla að skjóta því hérna inn að ég fór að smá wiki-flipp og komst að því að manga er semsagt teiknimyndablöðin og anime eru teiknimyndirnar.
Ég er ekki beint sérfróður um anime en mér finnst anime myndir skiptast í aðalatriðum í tvo flokka. Annars vegar teiknað action sem er ofbeldisfullt, blóðugt og oft (en ekkert endilega) með sci-fi brag. Þetta eru myndir svona eins og Akira. Hins vegar þá eru líka ævintýramyndir sem gerast í e-m brengluðum veruleika og er með miklu mythology og folklore ívafi og með þessu meina ég að það er alltaf skógarguðir eða einhvers konar djöflar sem eiga samt meira skylt með hindu eða öðru austrænum trúarbrögðum heldur en djöflum í kristni. Þarna er ég að tala um howl´s moving castle og steamboy. Princess Mononke myndi vera einhvers staðar þarna á milli. Totoro myndi hugsanlega flokkast með “ævintýra myndunum” en mér finnst bara ekki nógu flippuð til að vera anime. Allt þetta óvenjulega í myndinni eins og skógartröllin er ekkert meira óvenjulegt heldur en gengur og gerist í vestrænum barnamyndum. Nota bene, þessi pæling mín um anime myndir er byggð á þeim fáu myndum sem ég sjálfur hef séð þannig ég myndi kannski bara kalla þetta mína upplifun á anime myndum.

Eftir að ég sá myndina fór ég á wiki-flipp og komst að því að myndin var sýnd saman í bíó með annarri teiknimynd sem heitir Grave of the Fireflies. Við nánari athugun sá ég að þarna var eflaust mjög merkileg mynd á ferðinni og roger ebert vildi líkja henni við Schindler´s List. Sú mynd fjallar um unglingsstrák og 5 ára bróður hans sem flýja borgina sem þeir búa í vegna loftárása bandaríkjamanna í seinni heimsstyrjöldinni.
Ég horfði á nokkur atriði úr henni á youtube og öll kommentin við videoin voru á þennan veg .. “ég hef aldrei grátið jafn mikið yfir neinni mynd áður..”. Myndin er semsagt virkilega sorgleg og það hefur örugglega ekkert passað sérlega vel að sýna hana með jafn “léttri” mynd og Totoro. Ég las svo seinna að það var einmitt talin aðalástæðan fyrir því afhverju totoro floppaði svona í bíó. Það sem bjargaði myndinni og í rauninni Studio Ghibli sem var þá að koma sér fyrir, var sala á varningi í kringum myndina. Totoro bangsar og leikföng urðu algjört hitt og það er einmitt talið vera ástæðan fyrir því My neighbour totoro varð svo algjör cult mynda hit seinna meir.

Öllu á botninn hvolft þá er þetta fínasta mynd. Kannski fyrir aðeins of mikil barnamynd fyrir minn smekk en varðandi anime myndir þá finnst mér sumar þeirra eins og Howl´s moving castle bara miklu betri en flestar disney myndir.

Hérna í lokin verð ég samt að skjóta inn að ég var alls ekki sáttur með hvernig farið var með plottið í myndinni. Myndin hafði nefninlega upphaf sem breyttist svo í miðju myndarinnar en svo drollaði hún bara áfram þangað til að mjög aumt ris var í plottinu og svo endaði hún. Ég vil meina að ris myndarinnar og endir hafi bara verið eins og einhver redding hjá handritshöfundunum. Það er til eitthvað orð yfir þetta, þ.e. “reddingu endi” en ég virðist ekki geta fundið það. Það var kannski bara deus ex machina.

29 nóvember 2008

My winnipeg

My winnipeg var sýnd á riff 2008 og er leikstýrð af Guy Maddin.

My Winnipeg er mjög óvenjuleg bíómynd. Í byrjuninni á myndinni segir guy maddin við áhorfandann að hann ætli að reyna að komast burt frá Winnipeg og hann þurfi að gera það með því að kvikmynda sig í burtu. Myndin er semsagt hálfgerð heimildarmynd en í rauninni er voðalega erfitt eða ef til vill ekki hægt að flokka myndina. Þegar ég les þetta yfir aftur fatta ég að þetta er náttúrulega ekki rétt, myndin er bara experimental/indie.

Til þess að hjálpa sér við að “komast burt” frá Winnipeg ræður Maddin svo leikara og leigir gamla húsið sem hann bjó í. Hann lætur svo leikaranna sviðsetja valin brot úr barnæsku hans. Ég veit samt ekki alveg hvort að þessi brot hafi raunverulega átt sér stað.

Á milli þess sem leikna fjölskylda hans leikur brot úr barnæsku hans fær myndin pínu heimildamynda-blæ þar sem hann segir frá sögu og lífi í Winnipeg. Stundum gerir hann það á mjög ljóðrænan hátt og manni líður eins og maður sé að horfa á kvikmyndað ljóð. Svo eru líka skorpur í myndinni þar sem hann þylur upp bara beinar staðreyndir. Eins og ég sagði þá talar hann þá um daglegt líf í winnipeg en einnig skýtur hann inn skoðunum sínum á skipulagsmálum og talar um þegar nýr hokkívöllur var byggður og sá gamli rifinn. Winnipeg var endastöð íslensku vesturfaranna áður en þeir héldu til Nýja-Íslands og í sambandi við hokkívöllinn fer hann að þylja upp gamlar hokkíhetjur og einn þeirra heitir einmitt Buster Thorsteinsson.

Það er mjög sérstakur stíll yfir myndinni. Guy Maddin er sögumaðurinn og hann talar í gegnum myndina yfir mjög skrítnu myndefni. Myndin er svört hvít og skiptist á einhverju sem hann hafði tekið og líka gömlum klippum frá winnipeg. Það eru svo engin umhverfishljóð fyrir utan eitthvað sem hefur verið tekið upp í studioi. Það er erfitt að lýas þessu en við sáum í tíma stutta heimildarmynd sem Guy Maddin gerði um fólkið sem sá um búa til umhverfishljóðin í studioi fyrir myndina. Öðru hverju birtast svo stik orð á skjáinn sem leggja áherslu á það sem maddin var að segja eða lýsa e-u öðru. Myndefnið er þannig mjög draumkennt sem er það sem Maddin hefur einmitt verið að reyna að gera. Það er erfitt að ýminda sér þetta þannig að ég ætla að láta fylgja stutt video til þess að hægt sé að átta sig á þessu.

Ég fann engar klippur úr myndinni sjálfri en maður fær góða hugmynd um hvað ég átti við hérna fyrir ofan frá trailerinum.

27 nóvember 2008

Blade Runner


Blade runner gerist í framtíðinni árið 2019. Forsaga myndarinnar er að maðurinn hefur stofnað nýlendur í geimnum en til þess að byggja þær og gera alla erfiðu og hættulegu vinnuna voru búnir til einhvers konar klónar eða gena manipuleraðir menn sem eru kallaðir replicants. Replikantarnir áttu svo að hafa gert uppreisn og eru þá bannaðir á jörðinni.
Til að framfylgja banninnu á repliköntum eru Blade Runner units. Það eru e-s konar löggur sem að elta uppi og drepa replikantana.

Myndin fjallar um Rick Deckard sem er blade runner og í byrjun myndarinnar er hann fengin til að ráða af dögunum fjóra nexus-6 replikanta sem eiga að vera þeir verstu til þessa. Myndin fjallar svo í aðalatriðum um það hvernig Deckard nær þessum repliköntum og blandast svo inn í það ástarsamband hans og konu sem er replikant en veit ekki sjálf af því.

Myndin gerist í Los Angeles framtíðarinnar sem er orðin ansi þéttbyggð og samanstendur borgin af risavöxnum skýjakljúfrum og á milli þeirra fljúga bílar. Svo virðist líka sem að olía hafi fundist í miðri borginni eins og sést í byrjunaratriðinu þar sem að á sumum skýjukljúfrunum eru olíuturnar og eldtungur teygja sig upp frá þeim. Á jörðinni er götumarkaðs stemmning og mjög þröngt en ofar í skýjakljúfrunum býr ríka fólkið - eins og í metropolis. Umhverfið minnir á neo-tokyo og ég horfði á hana með það í huga að manga myndir eins og Akira hefðu verið undir áhrifum hennar hvað umhverfið varðar. Hins vegar þá sá ég seinna að mangabókin sem Akira er byggð á kemur út árið 1980 en BR 1982.

Myndin sýnir mjög dystópiska framtíð og það er þunglyndur blær yfir öllu. Reckard bregður aldrei bros á vör, það er alltaf nótt og ég held að það hafi ekki hætt að rigna yfir alla myndina!


Hérna er klippa af youtube úr myndinni. Mér finnst eins og þetta atriðið sé eins og úr leikinni manga mynd.